Sport

Formaður evrópsku ólympíunefndarinnar handtekinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Patrick Hickey.
Patrick Hickey. vísir/getty
Írinn Patrick Hickey er ekki í góðum málum eftir að hann var handtekinn í Ríó.

Hinn 71 árs gamli Hickey stóð í miðabraski með miða á leikana. Slíkt er bannað.

Er lögreglan bankaði upp á hjá Hickey þá reyndi hann að flýja. Öldungurinn náði ekki að stinga lögregluna af.

Eftir handtökuna hrakaði heilsu hans og þurfti Hickey læknisaðstoð í steininum.

Hickey er annar Írinn sem er handtekinn í Ríó fyrir miðabrask.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×