Sport

Úrslitin í strandblaki í beinni á Vísi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Úrslitin í strandblaki karla ráðast á Ólympíuleikunum í Ríó í nótt en sjálfur úrslitaleikurinn fer fram klukkan 03.00 í nótt, á miðnætti á staðartíma í Brasilíu. Bronsleikurinn fer fram tveimur tímum fyrr.

Úrslitin í kvennaflokki fóru fram í nótt en þar komu þær þýsku Laura Ludwig og Kara Walkenhorst á óvart með því að hafa betur gegn heimakonunum Agatha og Barbara í tveimur settum, 21-18 og 21-14, á Copacopana ströndinni.

Í karlaflokki eigast við fulltrúar Rússlands og Hollands í leiknum um bronsið. Brasilía fær svo annað tækifæri á að vinna gullið þegar Alison Cerutti og Bruno Oscar Schmidt mæta Paolo Nicolai og Daniele Lupo í úrslitaleiknum.

Hér fyrir neðan má sjá myndir frá úrslitaleiknum í nótt og fögnuði þýsku sigurvegaranna.

Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×