Lífið

Auddi endaði óvart í stólnum hjá Reykjavík Ink

Tinni Sveinsson skrifar
Í kvöld fer Auðunn Blöndal yfir dagskrá vetrarins á Stöð 2 í þættinum Haustveisla Stöðvar 2.

Fjöldinn allur af þáttum er á dagskrá stöðvarinnar og skyggnist Auðunn á bakvið tjöldin hjá þáttagerðarmönnunum og bregður á leik með skemmtilegum gestum.

Meðal þátta sem Auðunn kynnir sér er Reykjavík Ink en í þeim verður fylgst með fólki setjast í stólinn á húðflúrstofunni Reykjavík Ink við Frakkastíg. Það þarf því kannski ekki að koma á óvart að Auðunn skyldi sjálfur enda í stólnum þegar hann kíkti í heimsókn til Lindu Mjallar Þorsteinsdóttur og félaga í Reykjavík Ink og Sigrúnar Óskar Kristjánsdóttur, sem er umsjónarmaður þáttanna.

Haustveisla Stöðvar 2 er á dagskrá klukkan 19.10 í kvöld.


Tengdar fréttir

Leita að fólki sem langar í húðflúr

Þættirnir Reykjavík Ink sýndir á Stöð 2 í haust. Leita að fólki sem vill fegra eldri húðflúr, fá húðflúr yfir ör eða vera auður strigi fyrir listmenn stofunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×