Sport

Eygló Ósk komin áfram í undanúrslit

Óskar Ófeigur Jónsson í Ríó skrifar
Eygló Ósk Gústafsdóttir í sundinu í dag.
Eygló Ósk Gústafsdóttir í sundinu í dag. vísir/anton
Eygló Ósk Gústafsdóttir er komin áfram í undanúrslit í 100 metra baksundi á Ólympíuleikunum í Ríó.

Eygló synti í undanrásunum í dag og varð fimmta í sínum riðli á tímanum 1:00,89 mínútum. Eygló var 64 hundraðhlutum frá Íslandsmeti sínu.

Fyrri 50 metrarnir voru ekki nógu góðir hjá Eyglóu en hún sýndi styrk og keppnisskap með því að koma sterk til baka í seinni 50 metrunum.

Sundbolur hennar rifnaði rétt fyrir keppni og hún hafði ekki tíma til að finna nýjan. Hún varð því að keppa í rifnum sundbol.

Þetta var sextándi besti tíminn í undanrásunum og Eygló rétt slapp því inn í undanúrslitin sem fara fram í nótt. Það var mikil spenna í lokin hvort að þessi tími myndi duga en hún rétt slapp inn í undanúrslitin. Eygló fylgdist með í viðtalsherberginu og kom síðan brosandi í viðtal við íslensku blaðamannina.

Hin bandaríska Kathleen Baker var með besta tímann í undanrásunum, 58,84 sekúndur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×