Sport

Starfsmaður á ÓL í Ríó bað leikmanns strax eftir keppni

Óskar Ófeigur Jónsson í Ríó skrifar
Isadora Cerullo sagði já.
Isadora Cerullo sagði já. Vísir/Getty
Keppni í sjö manna rugby kvenna lauk í gær með sigri Ástralíu en þetta er í fyrsta sinn sem keppt er í greininni á Ólympíuleikum. Það var hins vegar ekki aðeins boðið upp á verðlaunaafhendingu í lokin heldur einnig bónorð.

Marjorie Enya, starfsmaður við rugby keppnina, stökk fram eftir verðlaunaafhendinguna, tók hljóðnemann og bauð upp á tilfinningaríka ræðu sem endaði með að hún bað eins leikmannsins.

Sú heppna heitir Isadora Cerullo og er leikmaður Brasilíu í sömu íþrótt. Brasilíska liðið endaði í 9. sæti í keppninni sem var betri árangur en búist var við.

Isadora Cerullo sagði já og áhorfendurnir fögnuðu því vel þegar þær föðmuðust.

„Um leið og ég vissi af því að hún hefði verið valin í liðið þá vissi ég líka að ég yrði að gera þetta sérstakt,“ sagði Marjorie Enya við BBC.

„Ég vissi að rugby-fólk væri frábært og þau myndu öll fagna þessu,“ sagði Marjorie en hún var í engum vafa um að biðja Isadoru. „Hún er ástin í mínu lífi,“ sagði Marjorie.

„Ólympíuleikarnir geta litið út eins og endapunktur fyrir suma en fyrir mig þýða þeir að ég er byrja nýtt líf með henni. Ég vildi líka sýna fólkinu að ástin vinnur alltaf,“ sagði Marjorie Enya.

Parið býr í borginni Sao Paulo en Isadora Cerullo hefur einnig bandarískt vegabréf. Hún flutti til Brasilíu til að einbeita sér að því að komast í brasilíska Ólympíuliðið.

Þar fann hún ástina og restin er hluti af Ólympíusögunni.

Vísir/Getty
Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×