Ungur tískufrömuður sem á marga aðdáendur Gunnhildur Jónsdóttir skrifar 2. júlí 2016 09:00 Jóel Bjarni og Gísli Pálmi flottir á því með Coldest húfu.
Það eru ekki allir 12 ára krakkar sem geta státað sig af því að vera með sitt eigið fatamerki. Jóel Bjarni er þó einn af þeim en hann rekur „street style“ merkið Coldest Clothing. Merkið er tiltölulega nýtt á nálinni en það má með sanni segja að það hafi sprungið út á Secret Solstice tónlistarhátíðinni sem haldin var fyrr í mánuðinum. „Jóel er mikill frumkvöðull og hefur alltaf verið mjög listrænn. Hann er á listabraut í skólanum sínum í London og er alltaf að pæla í hinu og þessu. Fyrir jól bjó hann til jólakort sem hann svo seldi. Hann er algjör „business“ maður enda setti hann upp kostnaðaráætun og framleiðsluplan en það er mjög gott fyrir hann að skilja hvernig svona gengur fyrir sig,“ segir Marlín Birna, móðir Jóels. Unnsteinn Manúel virkar sáttur með derhúfuna.Í janúar á þessu ári hóf Jóel að þróa derhúfur fyrir Coldest Clothing fatamerkið sitt en honum þótti vera gat í markaðinum fyrir töff derhúfur sem passa líka á krakka. „Einu derhúfurnar sem pössuðu á mig voru bara með Spiderman merki eða eitthvað í þá áttina. Þetta merki er nýtt og hægt að flokka sem „street style“. Ég fæ innblástur frá fólki úti á götu og eiginlega bara öllu í kringum mig,“ segir Jóel. Húfurnar koma í tveimur stærðum, „junior“ og fullorðins. Jóel var búinn að vera með hugmyndina lengi í hausnum áður en hann lét til skara skríða. „Ég kom einhverntíman heim eftir skóla og mamma sagði mér að verksmiðjan sem að hún væri að versla við gæti líka framleitt derhúfur. Þá fór hugmyndavinnan af stað og við fundum nafnið og fórum að teikna þetta upp. Ég er mjög stoltur af því að hafa kýlt á þetta og er sérstaklega þakklátur fyrir mömmu mína sem er búin að hvetja mig áfram allt ferlið. Núna er þetta komið af stað en mig langar að halda áfram að þróa merkið. Vid erum ad vinna í hettupeysum, bolum, fylgihlutum og fleiri tegundum af derhúfum.“ Þessi töffari tekur sig vel út með Coldest húfu.Það voru margir sem tóku eftir húfunum á Secret Solstice hátíðinni en meðal þeirra sem eignuðust sitt eigið eintak eru Gísli Pálmi, Tiny í Quarashi og DJ Yamaho. „Solstice hátíðin var mjög skemmtileg. Það var fullt af frægu fólki og þau voru öll að elska derhúfurnar. Gísli Pálmi fékk sér eina. Ég hitti líka Lady Leshurr baksviðs og gaf henni tvær en hún var mjög hrifin af þeim . Einnig fengu strákarnir í Section Boyz allir eintak sem þeir svo póstudu á snapchat.“ Húfurnar er hægt að nálgast í Neon í kringlunni og á netverslun Coldest Clothing.
Mest lesið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Lífið Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið Vonlaust að gagnrýna vini sína Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Lífið Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Lífið Fleiri fréttir Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið