Börn ein í barnavagni kannski barn síns tíma 10. júní 2016 07:00 Margrét María Sigurðardóttir umboðsmaður barna. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Samfélag „Þetta hefur verið hluti af okkar menningu. Okkur finnst Ísland alltaf vera svo öruggt en hvort það sé að breytast að þessu leyti má alveg skoða,“ segir Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, um þá staðreynd að margir foreldrar á Íslandi láti börn sín sofa úti í vögnum, ýmist úti í garði eða fyrir utan kaffihús eða verslanir. „Við höfum búið í öruggu samfélagi almennt og höfum notið góðs af því. Auðvitað vill maður samt ekki að eitthvað þurfi að koma upp á til þess að fara skoða þetta,“ segir Margrét. Á dögunum birtust fréttir á erlendum miðlum þar sem umfjöllunarefnið var barnavagn sem skilinn var eftir fyrir utan Laundromat Café við Austurstræti í miðbæ Reykjavíkur en í honum svaf lítill drengur. Tilefni fréttanna var mynd sem þáttastjórnandinn Jessica Rowe birti á samfélagsmiðlum og skrifar hún við myndina að henni hafi brugðið við að sjá að í Reykjavík skilji foreldrar börn eftir fyrir utan kaffihús. „Mér fannst frekar óþægilegt að lesa athugasemdir fólks við færsluna en það voru margir að hneykslast á því að ég skildi barnið eftir í vagninum,“ segir Hafrún Elísa Sigurðardóttir en hún er móðir drengsins sem svaf í vagninum á umræddri mynd. Hafrún bætir við að einnig hafi margir skrifað athugasemdir við myndina og útskýrt að þetta tíðkist hér á landi. „Mér brá auðvitað mjög mikið þegar ég sá að erlendir fjölmiðlar væru með myndir af barnavagni barnsins míns í umfjöllun um kæruleysi íslenskra foreldra. Ég er alin upp við þessa siði og hef ekki talið ástæðu til að taka barnið með mér inn þegar það sefur í vagninum. Að sjálfsögðu sit ég upp við rúðuna þar sem ég sé vagninn mjög vel,“ segir Hafrún. Margrét segir að það séu foreldrar sem beri ábyrgð á velferð og öryggi barna sinna en vonar að í langflestum tilvikum fylgist þeir með vögnum. „Við höfum ekki fengið neinar ábendingar um að barnavagnar séu skildir eftir án þess að fylgst sé með en þá gæti það verið barnaverndarmál.“
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira