Einar fékk gullmedalíu norræna augnlækna Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 12. júní 2016 20:37 Einar er fyrstur Íslendinga til að fá þessa viðurkenningu.
Einar Stefánsson, prófessor við Háskóla Íslands og yfirlæknir á augndeild Landspítalans, tók við Gullmedalíu norrænna augnlækna á þingi þeirra í Árósum um helgina. Einar er fyrstur Íslendinga til að fá þessa viðurkenningu. Í tilkynningu frá Háskóla Íslands segir að orðunni fylgi mesti heiður sem norrænir augnlæknar veita en hana fá einungis þeir sem hafa skarað fram úr í rannsóknum á augnsjúkdómum. Einar, sem flutti heiðursfyrirlestur á þingi norrænu læknanna um helgina, er mikilsvirtur vísindamaður og einn sá afkastamesti við Háskóla Íslands og Landspítala. Var hann t.d. valinn heiðursvísindamaður Landspítala fyrir fáeinum árum og haustið 2014 tók hann við sérstökum heiðursverðlaunum Danska augnlæknafélagsins fyrir afar mikilvægt framlag til rannsókna í augnlæknisfræði á alþjóðavettvangi. Hann hlaut heiðursverðlaun Ásu Guðmundsdóttir Wright fyrir árið 2008 en sama ár hlaut hann svokölluð Jules Gonin verðlaun. Þau eru ein merkustu verðlaun sem veitt eru í heiminum á sviði augnlæknisfræði. Norræna Gullmedalían, sem Einar hlaut um helgina, var fyrst veitt árið 1931 og hefur verið veitt á þingum norrænna augnlækna með hléum. Tíu augnlæknar og vísindamenn fengu orðuna fram til 1977, en síðan hefur hún verið veitt annað hvert ár.
Mest lesið Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Innlent Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Innlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Fleiri fréttir Með rafmagnsvopn í unglingapartíi Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Sjá meira