Stjórnendur eiga að vera í takti við aðra Nadine Guðrún Yaghi skrifar 15. júní 2016 07:00 Ólafía B. Rafnsdóttir
Launaþróun æðstu stjórnenda fyrirtækja á að vera í samræmi við almenna launaþróun á vinnumarkaði, að mati VR. Það er einnig mat VR að kaup og kjör æðstu stjórnenda eigi að taka mið af því sem gerist í sambærilegum störfum hjá sambærilegum fyrirtækjum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Ólafíu B. Rafnsdóttur, formanni VR. Í yfirlýsingunni segir að sú sé ekki raunin með launakjör og launaþróun framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, sem hafi verið til umfjöllunar í fjölmiðlum síðustu daga. Laun framkvæmdastjórans virðast vera umtalsvert hærri en þekkist í sambærilegum lífeyrissjóðum og virðast hafa tekið hækkunum á síðustu árum langt umfram það sem þekkist á almennum vinnumarkaði. „VR á fjóra fulltrúa í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Ég hef komið á framfæri við þá áhyggjum félagsins af stöðunni og þeim sjónarmiðum sem ég reifa hér að framan,“ segir í yfirlýsingu Ólafíu. Hún segir VR telja mikilvægt að stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna skoði reglulega launakjör framkvæmdastjóra sjóðsins til að tryggja að þau séu í takt við þær áherslur sem félagið hafi að leiðarljósi við gerð kjarasamninga fyrir félagsmenn sína. „Það ber að árétta að VR kemur ekki að ákvörðunum um launakjör framkvæmdastjóra eða annarra starfsmanna Lífeyrissjóðs verzlunarmanna en ég hef engu að síður óskað eftir því við fulltrúa félagins í stjórn sjóðsins að þetta verði rætt.“Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 15. júní.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Fleiri fréttir Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Sjá meira