Mest gaman að mála úti Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 4. júní 2016 09:15 Jón Ingi segir vatnslitina tekna allt öðrum tökum en olíulitina, því sé tilbreyting að fást við hvorutveggja. Mynd/Edda Björg Jónsdóttir „
Ég er mest með vatnsliti en þó eru fleiri olíuverk á þessari sýningu en mörgum þeim fyrri og ég hef breytt efnistökum á ýmsan hátt,“ segir Jón Ingi Sigurmundsson, fyrrverandi kennari og kórstjóri sem opnar sýningu í samkomuhúsinu Stað á Eyrarbakka í dag klukkan 14. Jón býr á Selfossi en er landvanur á Bakkanum. „Ég er fæddur hér á Eyrarbakka og uppalin og myndefnið hér sækir á mig þó auðvitað fari ég út fyrir það líka. Hér í Stað er ágætur salur og ég fæ að hafa hann þrjár helgar. Opna í dag og svo er sjómannadagurinn á morgun og mikið um að vera.“ Jón Ingi hefur hlotið menningarverðlaun Árborgar og verið heiðraður af tímaritinu International Artist Magazine. Hann hefur haldið fjölda sýninga enda byrjaði hann ungur að mála. „Jóhann Briem kenndi mér í upphafi og svo fór ég í nám bæði í Danmörku og Englandi. Kynntist vatnslitatækninni hjá mjög góðum vatnslitamálara í Englandi, Ron Ranson, stíllinn gerbreyttist hjá mér við það.“ Jón Ingi segir sjaldan viðra til að mála úti. „En á góðum degi finnst mér það lang mest gaman, þá fær maður mesta tilfinningu fyrir því sem maður er að fást við en birtan er síbreytileg.“ Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 4. júní 2016.
Mest lesið Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí Lífið „Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ Lífið Stjörnulífið: Suðræn sæla og seiðandi kroppar Lífið „Það eru smá blendnar tilfinningar að vera farin“ Lífið Glatkistunni lokað Menning Travolta klæddi sig óvænt upp sem Danny Zuko Lífið „Öruggt athvarf fyrir hinsegin samfélagið“ Lífið Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Lífið Myndaveisla frá Hafnarfirði - Bylgjulestin 2025 Lífið samstarf „Þetta kom mér jafnmikið á óvart eins og öðrum“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir „Öruggt athvarf fyrir hinsegin samfélagið“ Stjörnulífið: Suðræn sæla og seiðandi kroppar Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí „Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ „Það eru smá blendnar tilfinningar að vera farin“ Travolta klæddi sig óvænt upp sem Danny Zuko Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Skordýrabrúðkaup í Laugardalslaug Krakkatían: Leikhópurinn Lotta, fótboltamót og sumarsólstöður Sonur Rögnu og Árna fæddur Einn með fyrsta vinning og vann tæpar 54 milljónir Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Wintour víkur úr ritstjórastólnum eftir 37 ár Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi Sjá meira