Jóhann Hjartarson leiðir Skákþingið eftir ótrúlegar sviptingar Jóhann Óli Eiðsson skrifar 8. júní 2016 20:36 Skákþingið fer fram í Tónlistarskóla Seltjarnarness. mynd/skák.is
Stórmeistarinn Jóhann Hjartarson er einn efstur þegar átta umferðum af Skákþingi Íslands er lokið. Þrír anda ofan í hálsmál Jóhanns í jafnasta Skákþingi í manna minnum. Í kvöld lagði Jóhann alþjóðlega meistarann Einar Hjalta Jensson í mikilli sviptingaskák. Um 180 ELO stigum munar á köppunum og hallar þar talsvert á Einar. Hann stóð mun betur eftir byrjunina og virtist ætla að innbyrða sigur örugglega. Eftir rúma fimmtíu leiki lagði Jóhann gildru fyrir andstæðing sinn sem var síðasta hálmstráið og Einar beit á agnið. Skyndilega var það stórmeistarinn sem var með vinningsstöðu og lét hann hana ekki af hendi.Staðan í skák Jóhann og Einars eftir 52. Hc5. Einar Hjalti tók hrókinn og tapaði skákinni eftir 53. Hxg6 Kxg6 54. Dxh5+. Með réttri vörn hefði mátt halda jöfnu (samkvæmt tölvunum). Leikurinn 52. - Ha7 hefði hins vegar þýtt endalok hvíts.Í öðru til fjórða sæti er stórmeistarinn, og núverandi Íslandsmeistari, Héðinn Steingrímsson auk alþjóðlegu meistaranna Jóns Viktors Gunnarssonar og Braga Þorfinnssonar. Þeir tveir fyrrnefndu áttust við í kvöld og skyldu jafnir. Héðinn stóð um stund betur en lék af sér. Vestfirðingurinn fer hamförum Fyrir umferðina voru þeir fjórir, Jóhann, Jón Viktor, Bragi og Héðinn, efstir og jafnir með fimm vinninga hver. Bragi gerði jafntefli í dag við stórmeistarann Hjörvar Stein Grétarsson. Hjörvar var fyrir mótið sigurstranglegur enda stigahæstur keppenda. Hann hefur hins vegar átt afleitt mót og er sem stendur með 2 1/2 vinning í tíunda sæti af tólf. Þá er rétt að minnast á vaska framgöngu Vestfirðingsins Guðmundar Gíslasonar. FIDE-meistarinn byrjaði illa og tapaði fyrstu þremur skákunum. Síðan þá hefur hann unnið tvo stigahæstu keppendurnar, áðurnefnda Héðinn og Hjörvar, auk alþjóðlegu meistarana Guðmund Kjartanson og Einar Hjalta Jensson. Guðmundur, sem var tíundi stigahæsti keppandinn fyrir mót og nokkuð langt í næstu menn, gerði í kvöld jafntefli við Örn Leó Jóhannsson og er í 5.-6. sæti ásamt blaðamanninum Birni Þorfinnssyni með 4 1/2 vinning. Mótið fer fram í húsi Tónlistarskóla Seltjarnarness. Níunda og þriðja síðasta umferð hefst á morgun klukkan 15. Hægt er að mæta á staðinn og fylgjast með en að auki er hægt að horfa á beinar útsendingar í gegnum chess24.com.
Tengdar fréttir Héðinn Íslandsmeistari í skák eftir sigur á Hjörvari Héðinn Steingrímsson er Íslandsmeistari í þriðja sinn. 24. maí 2015 19:48 Íslandsmeistari sakar forseta um háreisti og drykkjulæti á hóteli Skákheimurinn nötrar en Héðinn Steingrímsson sem sakar félaga sína um háreisti fyrir framan hótelherbergi sitt daginn fyrir mikilvæga skák. 25. maí 2016 09:55 Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira
Héðinn Íslandsmeistari í skák eftir sigur á Hjörvari Héðinn Steingrímsson er Íslandsmeistari í þriðja sinn. 24. maí 2015 19:48
Íslandsmeistari sakar forseta um háreisti og drykkjulæti á hóteli Skákheimurinn nötrar en Héðinn Steingrímsson sem sakar félaga sína um háreisti fyrir framan hótelherbergi sitt daginn fyrir mikilvæga skák. 25. maí 2016 09:55