Tugir látist vegna flóða á Srí Lanka Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 20. maí 2016 11:28 Frá höfuðborg Srí Lanka í vikunni. vísir/getty
200 þúsund íbúar höfuðborgar Srí Lanka, Colombo, hafa þurft að flýja heimili sín vegna gríðarmikilla flóða í landinu síðustu daga. Ekki hefur verið meiri úrkoma á Srí Lanka í um 25 ár og hafa flóðin valdið gríðarmiklum aurskriðum með þeim afleiðingum að minnsta kosti 63 manns hafa látið lífið. Þá er að minnsta kosti 144 saknað og er því óttast að tala látinna eigi eftir að hækka. Maithripala Sirisena, forseti Srí Lanka, hefur hvatt landsmenn til að hjálpa til við að hlúa að þeim sem eiga um sárt að binda vegna flóðanna en talið er að um hálf milljón íbúa landsins þurfi á neyðaraðstoð að halda. „Við höfum nú þegar fengið aðstoð frá vinum okkar í alþjóðasamfélaginu,“ sagði forsetinn í sjónvarpsávarpi til þjóðarinnar. „Nú vil ég hvetja alla landsmenn, fyrirtæki og hjálparsamtök að hjálpa þeim sem hafa orðið illa úti á allan hátt sem þið getið.“ Íbúafjöldi Srí Lanka er tæplega 21 milljón en um 650 þúsund búa í höfuðborginni. Herinn stýrði aðgerðum þar í gærkvöldi þegar stórir hlutar borgarinnar voru rýmdir vegna flóðanna. Ástandið er hvað verst í héraðinu Kegalle sem er norðaustur af Colombeo. Þar létust alls 34 í tveimur aurskriðum í vikunni.
Mest lesið Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Brenndu rangt lík Erlent Leita í rústum íbúðahúsa Erlent Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Fleiri fréttir Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Sjá meira