18 mánuðir fyrir kynferðisbrot gegn stúpdóttur sinni Samúel Karl Ólason skrifar 20. maí 2016 22:14 Vísir/HARI
Karlmaður var á dögunum dæmdur í 18 mánaða fangelsi, þar af 15 skilorðsbundnir til þriggja ára, fyrir kynferðisbrot gegn sextán ára stjúpdóttur sinni. Stúlkan var sofandi upp í hjónarúmi með manninum, móður sinni og yngri systur, þegar maðurinn tók hönd hennar og setti hana á beran getnaðarlim sinn. Stýrði hann hendi stúlkunnar og lét hana fróa sér. Þegar hún náði að losa hendi sína tók hann höndina og setti hana aftur á getnaðarlim sinn. Stúlkunni tókst þó að endingu að losa hendi sína og vaknaði yngri systir hennar. Maðurinn játaði brotið. Hann viðurkenndi bótaskyldu en hafnaði upphæðinni sem farið var fram á. Móðir stúlkunnar krafðist einnar milljónar króna í miskabætur. Í úrskurði Héraðsdóms Reykjaness er tekið fram að hann hafi sagt við stúlkuna að hann gæti ekki farið fram á fyrirgefningu og túlkar dómurinn það sem fyrirgefningarbeiðni. Þá lagði maðurinn fram yfirlýsingu um að hann iðraðist og fyndi fyrir sektarkennd og skömm. Sálfræðingur staðfesti þar að auki að hann væri að leita sér hjálpar. Auk þess hafði hann þegar greitt stúlkunni 200 þúsund krónur sem bætur. Áðurnefnd atriði voru talin manninum til refsilækkunar, en það að hann hafi brotið gegn stjúpdóttur sinni er talið auka grófleika brotsins og talið manninum til refsiþyngingar. Hann var því dæmdur í átján mánaða fangelsi, þar af fimmtán mánuðir skilorðsbundnir til þriggja ára, og til að greiða stúlkunni 800 þúsund krónur auk vaxta. Þá var honum gert að greiða tæpar tvær milljónir króna í málskostnað.
Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira