Tekst Toronto að kæla LeBron og félaga í Kanada? Kristinn Páll Teitsson skrifar 21. maí 2016 23:00 Tekst Kanadamönnum að stöðva þennan í kvöld? Vísir/Getty
Toronto Raptors tekur á móti Cleveland Cavaliers í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvígi Austurdeildarinnar í NBA-deildinni í nótt en eftir tvo heimasigra í Cleveland eru leikmenn Raptors komnir með bakið upp að vegg. Cleveland með LeBron James innanborðs hefur haft það nokkuð náðugt á leið sinni í undanúrslitin en liðið sópaði Detroit Pistons og Atlanta Hawks í sumarfrí í fyrstu tveimur umferðunum. Talið var að Toronto myndi veita þeim meiri samkeppni en leikmenn Raptors hafa engin svör átt við frábærri spilamennsku leikmanna Cleveland hingað til og takist Cleveland að stela sigri í kvöld er erfitt að sjá Toronto vinna fjóra leiki í röð.Sjá einnig:Cleveland enn ósigrað í úrslitakeppninni | MyndböndKemur Lowry úr skelinni í kvöld?Vísir/GettyÞað mun mikið mæða á leikstjórnanda Toronto Raptors, Kyle Lowry, í kvöld eftir tvo slaka leiki í Cleveland. Hann virtist vera fullur sjálfstrausts á blaðamannafundum fyrir leik en hann verður að stíga upp og eiga góðan leik til þess að Toronto Raptors geti gert þetta einvígi spennandi á ný. Toronto hefur verið töluvert sterkara á heimavelli í fyrstu umferðum úrslitakeppninnar þar sem liðið hefur unnið sex af átta leikjum sínum (75% sigurhlutfall) en á útivelli hefur liðið tapað fjórum í röð og aðeins unnið tvo leiki af sex (33,3% sigurhlutfall). Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í kvöld og hefst útsending 00.30.
NBA Mest lesið DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Treyja Pelé frá úrslitaleik HM 1958 seldist á 617 milljónir Fótbolti Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Fótbolti Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Íslenski boltinn „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Enski boltinn Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Fylkismenn kláruðu Njarðvíkinga fyrir hlé Íslenski boltinn Tveir öflugir Spánverjar æfðu ekki með restinni af liðinu Fótbolti Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Fleiri fréttir LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Sjá meira