Maður skotinn með róandi ör eftir að hafa brotist inn í ljónabúr Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 22. maí 2016 07:47 Ljónin drápust bæði. Vísir/Getty
Maður sem klifraði inn í ljónabúr, afklæddist og lék sér að því að stríða dýrunum þar til þau réðust að honum var skotinn með ör sem innihélt róandi lyf þegar dýragarðsverðir reyndu að bjarga lífi hans. Atvikið átti sér stað í Santiago Metropolitan dýragarðinum í Chile. Gestir dýragarðsins fylgdust með furðulostnir en málinu lyktaði með því að starfsmenn skutu tvö ljónanna með þeim afleiðingum að þau drápust. Maðurinn var með sjálfsmorðsbréf í fórum sínum að því er kemur fram í frétt Guardian um málið. Maðurinn er tvítugur og heitir Franco Luis Ferrada. Hann klifraði ofan á búr dýranna og braut sér leið inn. Samkvæmt vitnum létu ljónin hann upphaflega afskiptalausan en réðust á hann eftir að hann ögraði þeim. Dýragarðsverðir reyndu í fyrstu að sprauta vatni á dýrin og því næst með því að skjóta að þeim róandi lyfjum en eins og fyrr segir hafnaði slík ör í hálsi Ferrada. Þegar ekkert gekk og ljónin ógnuðu manninum ennfrekar skaut dýragarðsvörður dýrin sem drápust fyrir framan stóran hóp af dýragarðsgestum. Ferrada var færður á gjörgæsludeild sjúkrahúss í bænum en hann slasaðist á höfði og mjaðmagrind auk þess sem hann hafði fengið risastóran skammt af róandi lyfjum.
Mest lesið Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Leita í rústum íbúðahúsa Erlent Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Fleiri fréttir Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Sjá meira