Stjórnarmaður í GR stendur með „risaeðlunum“ á Muirfield Jakob Bjarnar skrifar 25. maí 2016 13:50 Karlarnir á Muirfield fá óvæntan stuðning frá Íslandi -- sem löngum hefur verið talið Eldorado femínismans. Margeir, stjórnarmaður í GR, sendir stuðningskveðju yfir hafið.
Verulegt uppnám varð nýverið í golfheiminum þegar hinn forni og frægi golfklúbbur Muirfield á Skotlandi, vöggu golfsins, ákvað að samþykkja ekki tillögu þess efnis að konum yrði veitt innganga í klúbbinn. Klúbburinn hefur í kjölfarið verið úthrópaður, stjórnin sögð samanstanda af risaeðlum sem þjökuð er af inngróinni karlrembu. Þetta hefur þegar haft þær afleiðingar að R&A, yfirstjórn golfmála, hefur tekið Muirfield af út af lista yfir þá klúbba sem hýsa alþjóðlegar mótaraðir; „Open rota“, en á Muirfield hefur fjöldi þekktra móta verið haldin. Fordæmingarnar eru miklar og víðtækar.Óvæntur stuðningur frá Íslandi En, stjórn golfklúbbsins á Muirfield á sér hauk í horni á Íslandi, nefnilega hann Margeir Vilhjálmsson, sem er stjórnarmaður í Golfklúbbi Reykjavíkur. Hann skrifar grein á Kylfingur.is þar sem hann lýsir yfir fullum stuðningi við stjórnina þar, undir yfirsögninni: „Karlmenn sem standa í lappirnar“.Á Muirfield skipta hefðirnar öllu máli. Þessi klúbbur er nú tæplega 300 ára gamall og nútíminn gargar á hann.„Jafnrétti er ekki búið til með því að troða konum inn í rótgróna karlaklúbba, eða troða körlum inn í rótgrónar kvenhreyfingar. Það er gott að kynin eigi griðastaði hvort fyrir öðru. Lítum bara á Hjallastefnuna. Strákar eru strákar og stelpur eru stelpur,“ segir í lokaorðum pistilsins: „Ég er ánægður með mína menn í The Honourable Company of Edinburgh Golfers. Karlmenn sem standa í lappirnar og láta pólitíska rétthugsun lönd og leið.“ Þetta má heita nokkuð óvæntur stuðningur frá Íslandi, sem þekkt er fyrir að vera Eldóradó femínisma á veraldarvísu.Margir sammála Margeiri en þora ekki að lýsa því yfir Pistill Margeirs er skemmtilegur en hann rekur í stuttu máli sögu The Honourable Company of Edinburgh Golfers, sögu sem rekja má allt aftur til ársins 1744 sem gerir klúbbinn 272 í ár. Þarna skipta hefðirnar öllu máli. Margeir segist, í samtali við Vísi, hafa fengið margvísleg viðbrögð við pistlinum, í einkaskilaboðum og í símtölum. Og það sem meira er, viðbrögðin eru á eina leið þó menn vilji ekki lýsa þeim skoðunum sínum opinberlega.Þeir á Muirfield eiga hauk í horni á Íslandi sem er Margeir Vilhjálmsson, stjórnarmaður í GR.visir/Arnþór„Já, menn eru mjög ánægðir og alveg sammála. En þetta er mál sem menn vilja ekkert endilega opinberlega taka stöðu með. Það eru mörg mál þar sem R og A sjálfir þyrftu að standa sig miklu betur gagnvart konum og því eiginlega lélegur brandari að þeir séu að refsa Muirfield mönnum.“Konur eiga ekkert erindi í karlaklúbba Margeir bendir til dæmis í því sambandi að bara það að R&A reki ekki Open-mót fyrir konur ætti að fá fólk til að staldra við. Það sé mikil hræsni innbyggð í þessa umræðu. „Ég er mikill jafnréttissinni en mér finnst það að vilja setja konur inn i kallaklúbba og öfugt ekki vera mikilvægt í þeirri baráttu,“ segir Margeir.En, er virkilega enginn að senda þér tóninn vegna þessarar eindregnu afstöðu þinni? „Nei, það er enginn að hrauna yfir mig,“ segir Margeir sem nú veltir því fyrir sér að láta þýða pistil sinn yfir á ensku og senda þeim Muirfield-mönnum yfir hafið, en þeir eiga nú mjög undir högg að sækja vegna þessa.
Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira