Tveir hópar reyndu að smygla sér um borð í skip á einni nóttu 25. maí 2016 21:09
Hælisleitendur hafa á annan tug skipta á þessu ári reynt að smygla sér um borð í skip Eimskipafélagsins, nú síðast í nótt þegar sjö menn voru handteknir. Ríkislögreglustjóri segir Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu of fáliðaða til að eiga við þennan vanda. Upp úr klukkan hálf tvö í nótt urðu vaktmenn Eimskipafélagsins varir við mannaferðir í kringum girðingu hafnarsvæðisins við Sundahöfn. Fjórir menn komust inn á svæðið og földu sig bak við gáma sem á hafnarbakkanum standa. Leit hófst þegar í stað að mönnunum sem fundust fljótt enda mikil öryggisgæsla á svæðinu. Ætlun mannanna var að komast um borð í Reykjafoss sem siglir á næstunni vestur um haf. Þeir komust ekki langt því þeir handteknir af lögreglu skömmu eftir komuna inn á svæðið. Þar með er ekki öll sagan sögð því skömmu eftir að lögreglan var farin með mennina fjóra reyndi annar hópur það sama. Aftur var kallað til lögreglu sem handtók þrjá menn á svæðinu. Ólafur William Hand, talsmaður Eimskips, segir tilraunir sem þessar hafa færst mjög í vöxt og hafi verið algengar á árinu. Hann vill að stjórnvöld bregðist við ástandinu. Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri, segir vandamálið hafa verið rætt innan lögreglunnar en mannekla innan hennar setji strik í reikninginn.
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent Framlengir vopnahléið og herkvína Erlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira