Grunur er um mansal hjá Félagi heyrnarlausra Snærós Sindradóttir skrifar 26. maí 2016 00:45 Daði Hreinsson, framkvæmdastjóri Félags heyrnarlausra, vísar ásökununum á bug og segir að sögunni sé komið til lögreglunnar af fólki sem sé í valdabaráttu innan félagsins. Vísir/GVA
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar vinnumansalsmál innan Félags heyrnarlausra. Rússnesk kona sem kom hingað til starfa við að selja happdrættismiða dvelur nú í Kvennaathvarfinu á meðan málið er til rannsóknar. „Ég get í raun bara staðfest að við erum með einn einstakling sem við erum með grun um að sé þolandi mansals í Kvennaathvarfi. En ég get ekkert sagt með tengingar við félag, ég get ekki tjáð mig um það núna,“ segir Snorri Birgisson, yfirmaður mansalsteymis lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins þurfti konan sem um ræðir að borga 1000 dollara við komuna til landsins án þess að hafa hér atvinnuleyfi. Það hefur hún gert í tvígang. Hún hafi fengið um 20 þúsund krónur í laun á síðustu tveimur mánuðum. Þá hafi hún verið rukkuð fyrir skutl á vegum vinnuveitanda síns á þau svæði þar sem henni var gert að vinna, allt að 3000 krónur í hvert skipti.Starfsmaður Félags heyrnarlausra liggur undir grun vegna mansals í tengslum við happdrættissölu félagsins. vísir/VilhelmDaði Hreinsson, framkvæmdastjóri Félags heyrnarlausra, vísar ásökununum á bug og segir að sögunni sé komið til lögreglunnar af fólki sem sé í valdabaráttu innan félagsins. Aðalfundur félagsins er í dag. „Fyrir hvern aðalfund hefur verið allskonar taktík í gangi meðal lítils hóps. Það virðist vera þannig að þeim sárnar mjög að félaginu hefur gengið afskaplega vel.“ Daði segir ásakanirnar snúa að starfsmanni félagsins sem sjái um fjáröflun þess. „Þetta er fólk sem kemur erlendis frá og hefur verið að hjálpa félaginu að selja vegna þess að við fáum enga íslenska heyrnarlausa til að selja happdrættin í hús.“ Starfsmaðurinn var sendur í launalaust leyfi þegar málið kom upp á sunnudag.Eiga að fá 25% af sölunni Samkomulag Félags heyrnarlausra við fólkið er að þau fái 25% af sölu happdrættismiðanna í laun. Konan sem um ræðir í þessu máli fékk hinsvegar aðeins 15% af andvirði sölunnar. Daði segir að um samkomulag hafi verið á milli hennar og starfsmannsins gegn því að hún fengi fría gistingu á heimili hans. „Hún hefur komið hingað þrisvar eða fjórum sinnum áður, algjörlega sjálfviljug. Við höfum aðstoðað við að borga hluta í flugmiðanum því hún hefur reynst dugleg stelpan. Þannig að við vísum alfarið á bug það að þetta sé mansal.“ Daði segir að það sé alrangt að 1000 dollarar hafi verið teknir af konunni heldur hafi maðurinn tryggt þá vegna reglna hjá rússneska sendiráðinu. Starfsmaður rússneska sendiráðsins sem Fréttablaðið ræddi við segir að engar slíkar reglur séu við lýði. Daði segir að fólkið sem starfaði við happdrættissöluna hafi látið sig hverfa og sé óínáanlegt nú. „Þau hafa greinilega farið heim til einhverra þeirra sem eru í þessu plotti, því miður. Þannig að það sem okkur vantar alfarið í þetta eru báðar hliðar á málinu.“Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 26. maí.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fleiri fréttir Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Sjá meira