Nítján ára sýknaður af nauðgun Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 26. maí 2016 15:33 Meint nauðgun á að hafa átt sér stað á írskum dögum á Akranesi í júlí 2014. vísir/gva
Nítján ára karlmaður var í Héraðsdómi Vesturlands í gær sýknaður af ákæru um að hafa nauðgað jafnöldru sinni í júlí 2014. Honum var gefið að sök að hafa notfært sér að stúlkan gæti ekki spornað við samræðinu sökum svefndrunga og ölvunar. Pilturinn, sem var sautján ára þegar atvik gerðust, viðurkenndi að hafa haft samfarir við stúlkuna, en með fullu samþykki hennar. Hún hafi verið vakandi allan tímann og tekið fullan þátt í þeim. Stúlkan hins vegar segist hafa vaknað við það að ákærði lá ofan á henni og var að hafa við hana samfarir. Skömmu síðar hafi hún dottið aftur út sökum ölvunar. Forsaga málsins er að þau tvö, ásamt fleirum, höfðu setið að sumbli fyrr um kvöldið áður en þau héldu á útisamkomu, írska daga, á Akranesi. Að henni lokinni hafi þeim verið ekið í heimahús þar sem þau hugðust gista. Stúlkan sagðist ekki muna eftir bílferðinni, en munað eftir því að hún lá uppi í koju þegar pilturinn kom að hlið hennar. Hún hafi svo rankað aftur við sér þegar pilturinn var að fara niður úr kojunni og fengið „algjört sjokk og gert sér grein fyrir því að hún væri nakin og hlaupið niður á bað“. Stúlkan sagði piltinn þá hafa reynt að komast inn á bað til sín. Hann sagðist hins vegar hafa orðið stressaður yfir hversu lengi hún hafi verið inni á baði og því farið til hennar og spurt hana hvort hún kynni að vera ólétt. Hún hafi sagt honum að hún væri á pillunni. Stúlkan leitaði á neyðarmóttöku Landspítalans tveimur dögum eftir atvikið. Engir ytri áverkar fundust við skoðun, hvorki á líkama né kynfærum. Læknir sagði það geta komið heim og saman við það ef stúlkan hafi verið meira og minna í dauðadái þegar samfarir voru hafðar við hana. Haft er eftir uppeldis- og afbrotafræðingi í Barnahúsi í dómnum að stúlkan hafi upplifað mikinn ótta við meinta nauðgun sem hafi leitt til mikils kvíða. Hún hafi lokað sig af frá samfélaginu og misst úr skóla. Dómurinn taldi nokkuð misræmi í framburði stúlkunnar, sem þó sé ekki ótrúverðugur, enda megi hugsanlega rekja misræmi í framburði hennar til ástands hennar umrætt kvöld. Þá hafi ákæruvaldið ekki fært viðhlítandi sönnur á að ákærði hafi í umrætt sinn af ásetningi notfært sér að stúlkan gæti ekki spornað við athæfinu og var pilturinn því sýknaður af sakargiftum í málinu.
Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent „Fólk er ekki heimskt“ Innlent Fleiri fréttir Rafmagnslaust í Breiðholti Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Sjá meira