Sport

Hafnaboltaleikmaður vann ársbirgðir af bjór

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Laird brosir alla leiðina á barinn þessa dagana.
Laird brosir alla leiðina á barinn þessa dagana. vísir/getty
Ef þú spilar hafnabolta í Japan þá geturðu fengið margt annað en peninga í laun.

Það fékk Bandaríkjamaðurinn Brandon Laird að reyna í leik þar í landi á dögunum. Laird er fyrrum leikmaður í MLB-deildinni í Bandaríkjunum.

Laird sló boltann út fyrir völlinn í leik síns liðs, Nippon Ham Fighters, og það sem meira er þá endaði boltinn á auglýsingaskilti frá Kirin bjórframleiðandanum.

Það þýddi að hann vann sér inn 1,2 milljónir króna og ársbirgðir af bjór frá Kirin.

Japaninn hefur þann háttinn á að auglýsingaskiltin, sem geta orðið i vegi bolta sem er að skila heimahafnarhlaupi, þýða að þú færð vinning frá þeim ef þú hittir skiltin.

Laird hitti bjórskiltið og getur því boðið félögunum í frían bjór næsta árið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×