Líklega mannana verk Birta Björnsdóttir skrifar 19. maí 2016 19:30
Vélin var á leið frá Charles de Gaulle flugvelli í París í Frakklandi til Kaíró í Egyptalandi. Hún mun hafa hrapað undan grísku eynni Karpathor eftir að hafa verið á flugi í þrjár klukkustundir og fjörutíu mínútur. Vélin var þá komin sextán kílómetra inn í egypska lögsögu og var um það bil 280 kílómetra norðan við strönd Egyptalands. 66 voru um borð í vélinni, þar af þrjátíu frá Egyptalandi og 15 franskir ríkisborgarar. Panos Kammenos, varnarmálaráðherra Grikklands, greindi frá óvenjulegum hreyfingum flugvélarinnar, sem er af gerðinni Airbus A320, á blaðamannafundi fyrr í dag. „Klukkan 3.37 beygði flugvélin, sem var 16-24 kílómetra inni í lofthelgi Egyptalands, á egypsku flugstjórnarsvæði, í 37 þúsund feta hæð, 90 gráður til vinstri og síðan 360 gráður til hægri og lækkaði flugið úr 37 þúsund fetum í 15 þúsund fet og síðan hvarf ratsjármyndin sem við höfðum í 10 þúsund feta hæð," sagði Kammenos. Ekkert hefur fengist staðfest um ástæður þess að vélin brotlenti. Bandarískir embættismenn viðruðu þá kenningu við fréttastofu CNN í dag að þotan hafi verið sprengd upp. Yfirvöld í Egyptalandi segja að líklegra sé um að ræða mannana verk frekar en tæknilega bilun. „Aðstæðurnar gætu bent til þess, og ég segi gætu því ég vil ekki vera með neinar getgátur eða draga ályktanir eins og aðrir, en ef maður greinir aðstæðurnar til hlítar er möguleikinn að um hryðjuverk hafi verið að ræða meiri en sá möguleiki að um tæknibilunhafi verið að ræða," Sherif Fathi, flugmálaráðherra Egyptalands. Ættingjar þeirra sem voru um borð í vélinni biðu í allan dag svara um afdrif ástvina sinna.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Orbán hættir á þingi Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Sjá meira