Gemsinn varð banabiti Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 6. maí 2016 07:00 Goddur með hinstu útgáfu símaskrárinnar. v „
Þetta er símaskráin sem fólk mun vilja eiga,“ segir Stefán Pálsson sagnfræðingur um hinstu útgáfu símaskrárinnar sem fólk getur sótt sér í dag. Stefán hefur skráð sögu símaskrárinnar sem hefur komið út í 111 ár og gerir henni skil í útgáfunni með skemmtilegum hætti. „Símaskráin virkar sem ofurhversdagslegur hlutur, en hefur verið til á hverju einasta heimili svo árum skiptir og getur sagt ákveðna sögu.“ Stefán skoðar símaskrána meðal annars sem auglýsingamiðil um öryggismál. Hann dragi fram það skemmtilega og skringilega. „Til dæmis þegar það var á ákveðnum tímapunkti fellt út úr ráðum um fyrstu hjálp hvenær væri ráðlegt að gefa manni fyrstu sígarettuna eftir slys,“ segir Stefán sem leit einnig til útlanda. „Símaskrár lifa enn góðu lífi í Bandaríkjunum og sá bransi veltir jafn miklu og Hollywood. Við fáum samt engar fréttir af því hvaða símaskrár eru að velta mest.“ Er þetta raunverulega hinsta útgáfa símaskrárinnar? „Gemsinn drap símaskrána. Við notum ekki jarðlínusímann eins og áður. Ef símaskráin verður gefin aftur út, þá held ég að það verði á öðrum forsendum,“ segir Stefán.Stefán Pálsson sagnfræðingur sökkti sér í sögu símaskránnar og komst að ýmsu forvitnilegu sem hann gerir skil í hinstu útgáfu hennar.vísir/gvaGuðmundur Oddur Magnússon, betur þekktur sem Goddur, prófessor við Hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands, hannaði útlit símaskrárinnar. „Ég samþykkti það með þeim skilyrðum að ég vildi fá að ráða þessu alfarið,“ segir Goddur. „Símaskráin hefur alltaf verið ljót. Ég hef aldrei fílað hana.“ Goddur kveðst þó hafa tekið eftir því þegar hann var yngri og kom á íslensk menningarheimili að fólki þótti vænt um símaskrána og reyndi að gera hana fallega. „Oft bjó fólk til nýja kápu utan um símaskrána. Ástæðan var sú að símaskráin var fólki kær.“ Goddur hafði þessa væntumþykju í huga í hönnunarferlinu. „Í hönnunarvinnunni nýtti ég Sjónabókina, handrit með munstrum sem notuð voru í útsaumi og vefnaði áður fyrr. Því þessi bók varð að vera falleg,“ segir hann og kveður of snemmt að afskrifa símaskrána. „Hvað eigum við að gera í rafmagnsleysi? Ég trúi ekki að þetta verði hinsta útgáfan,“ segir Goddur.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 6. maí
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira