Afgreiðslu lokað með 100 á bið Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 7. maí 2016 07:00 Fólk var búið að bíða í einn til tvo klukkutíma eftir afgreiðslu klukkan ellefu í gærmorgun. Fréttablaðið/Vilhelm „
Auðvitað verður fólk pirrað. Sérstaklega þau sem hafa beðið í tvo tíma og komast svo að því að það vantar gögn eða það er ekki með löggild skilríki,“ segir Hildur Edwald, fagstjóri ökuskírteina og vegabréfa hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Afgreiðslan er Dalvegi í Kópavogi. Í gærmorgun biðu fimmtíu eftir afgreiðslu og þegar klukkan var orðin tvö voru 97 sem biðu og var þá ákveðið að loka fyrir fleiri afgreiðslur þann daginn. Fólk beið í allt að tvo klukkutíma, öll sæti voru upptekin og því margir sem stóðu eða sátu í stiganum frammi í anddyri. Starfsmenn litu ekki upp og Hildur svaraði símanum á milli þess sem hún svaraði blaðamanni. „Það var frí í gær og þá er tvöfaldur dagur í dag. Svo er þetta fyrsta vika mánaðarins og þar sem við tökum ekki kreditkort eru margir sem koma fljótlega eftir mánaðamót. Einnig er sumarfrí fram undan og fólk farið að huga að því,“ segir Hildur. Ekki er ljóst hvenær eða hvort sumarstarfsmenn taka til starfa. Hildur segir mikið álag á föstu starfsfólki. Því sé mikil hreyfing á því. „Sá starfsmaður sem hefur verið lengst í vegabréfunum hefur ekki náð ári í starfi,“ segir hún.Hildur Edwald, fagstjóri ökuskirteina og vegabréfa.Fréttablaðið/vilhelmMinnst tvö skrifborð standa auð. „Það eru þrír gjaldkerar og þrír í vegabréfunum. Það er pláss fyrir fleiri en við fáum ekki að ráða fólk.“ Hildur segir engan tíma betri en annan til að koma. Klukkan hálf níu á morgnana sé komin röð fyrir utan þegar starfsfólk mætir. „Það voru fimmtíu manns hér fyrir utan áður en við opnuðum í morgun og svo eykst álagið þegar líður á daginn.“ Þórólfur Halldórsson sýslumaður segir fjárheimildir stofnunarinnar hafa afgerandi áhrif á ráðningar. Álagið sé gríðarlegt og geti haft áhrif á heilsu starfsfólksins. Ófyrirsjáanlegt sé hversu margir viðskiptavinir verði hvern dag og óvenju margir hafi komið í gær. „Til að bæta gráu ofan á svart eru vegabréfatölvurnar flestar úr sér gengnar og þarf stundum að endurræsa hvað eftir annað við eina afgreiðslu.“ Þórólfur segir úrbætur í sjónmáli. „Í sumar er á áætlun að flytja starfsemina í hentugra húsnæði og þá verður búnaðurinn endurnýjaður frá grunni. Vonast er til að sú breyting muni hraða afgreiðslunni fjór- til fimmfalt. Varist algeng mistök Ekki gleyma löggildum skilríkjum, vegabréfi eða ökuskírteini. Bankakort duga ekki. Það er ekki hægt að greiða með kreditkortum. Ekki gleyma undirrituðu samþykki forsjáraðila fyrir börnin. Með tveimur vottum. Afgreiðslutími vegabréfa er 13 virkir dagar. Einnig er hægt er að sækja um vegabréf hjá sýslumönnum í öðrum landshlutum, t.a.m. á Selfossi, Akranesi og Reykjanesbæ.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 7. maí
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira