San Antonio og Oklahoma mætast í beinni á Stöð 2 Sport í nótt Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. apríl 2016 22:00 Russell Westbrook og Kawhi Leonard eigast við. vísir/getty
San Antonio Spurs og Oklahoma City Thunder mætast í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA í nótt. San Antonio sópaði vængbrotnu liði Memphis Grizzlies í fyrstu umferð úrslitakeppninnar á meðan Oklahoma vann Dallas Mavericks í fimm leikjum. Hjá Oklahoma mæðir mest á tveimur mönnum; Russell Westbrook og Kevin Durant, en þeir félagar skoruðu báðir 26,0 stig að meðaltali í leik í Dallas-seríunni. Westbrook var auk þess með 7,2 fráköst og 11,2 stoðsendingar að meðaltali í leikjunum fimm. Westbrook og Durant hafa borið Oklahoma-liðið uppi undanfarin ár en ekki komist í lokaúrslitin frá 2012. Oklahoma missti af sæti í úrslitakeppninni í fyrra en árið þar á undan tapaði liðið 4-2 fyrir San Antonio í úrslitum Vesturdeildarinnar. San Antonio hefur verið áskrifandi að sæti í úrslitakeppninni allt frá því liðið valdi Tim Duncan númer eitt í nýliðavalinu 1997. Á þessum tíma hefur San Antonio fimm sinnum orðið NBA-meistari, síðast fyrir tveimur árum. San Antonio er með heimavallaréttinn í einvíginu gegn Oklahoma sem gæti skipt sköpum enda vann liðið 40 af 41 leik sínum á heimavelli í deildakeppninni. Fyrstu tveir leikirnir fara fram í San Antonio en eftir það færist einvígið yfir til Oklahoma.Fyrsti leikur San Antonio og Oklahoma, sem fer fram í AT&T Center í San Antonio, hefst klukkan 00:30 í nótt og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD.
NBA Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Körfubolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu Sjá meira