Dýrt að taka út lágar upphæðir í hraðbönkum erlendis Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 28. apríl 2016 07:00
Það verður dýrara að kaupa erlendan gjaldeyri í útibúi Arion banka á Keflavíkurflugvelli sem opnað verður sunnudaginn 1. maí en í öðrum útibúum bankans. Hægt verður að sjá á vef bankans hver verðmunurinn er hverju sinni, að því er Hlynur Ómar Björnsson upplýsingafulltrúi greinir frá. Hann segir dýrt að vera með útibú á Keflavíkurflugvelli auk þess sem það kosti að hafa afgreiðsluna opna allan sólarhringinn. Það fer auðvitað eftir því hvernig ferðamenn ætla að haga ferðalagi sínu hvort þeir gefa sér tíma til að bera saman þær mismunandi tegundir gengis sem eru í umferð og þar með mögulega spara umtalsverðar fjárhæðir. Á vef Landsbankans sést til dæmis að á hverjum tíma eru í raun nokkrar ólíkar tegundir gengis í umferð. Seðlagengi, Leifsstöðvargengi, almennt gengi og kortagengi er það sem ferðamenn þurfa að skoða vilji þeir og nenni að gera samanburð. Meta þarf til dæmis hvort ferð í banka áður en haldið er til Keflavíkur borgar sig þegar kaupa á gjaldeyri eða hvort nýta eigi sér þægindin sem felast í því að kaupa gjaldeyrinn á Keflavíkurflugvelli.Ódýrara er að nota debetkort en kreditkort í hraðbönkum erlendis þar sem úttektargjaldið er lægra þegar tekið er út reiðufé með debetkorti.vísir/EPAÞegar greitt er með debetkorti erlendis er miðað við almennt gengi auk 1% gjalds af upphæðinni og debetkortafærslugjalds sem er tæpar 20 krónur. Miðað er við kortagengi þegar greitt er með kreditkorti. Þjónustugjald Landsbankans, Arion banka og Íslandsbanka vegna úttektar með debetkorti í hraðbanka erlendis er 2% af upphæðinni. Þjónustugjald bankanna vegna úttektar með kreditkorti, Mastercard og VISA, í hraðbanka erlendis er frá 2,5% til 2,75% af upphæðinni. Lágmarksþóknunin er frá 440 krónum upp í 800 krónur. Það getur þess vegna verið dýrt að taka út lágar upphæðir. Af framangreindu sést að það er ódýrara að nota debetkort en kreditkort í hraðbönkum erlendis þar sem úttektargjaldið er lægra þegar tekið er út reiðufé með debetkorti. Þeir sem eru á ferð erlendis eru æ oftar spurðir að því hvort þeir vilji greiða með greiðslukorti í sínum eigin gjaldmiðli í stað gjaldmiðils viðkomandi lands. Á vef Landsbankans er bent á að greiðsla sem samþykkt er með þessum hætti sé ekki háð sveiflum á gengi frá þeim tíma sem færslan er staðfest og þangað til upplýsingar um færsluna berast til kortaútgefanda eins og venja er hérlendis. Engar reglur eru þó til um hámarksþóknun og hámarksgreiðslur fyrir þessa þjónustu. Upp hafi komið tilvik þar sem álag og þóknanir séu algjörlega úr takti við það sem eðlilegt geti talist. Erfitt og jafnvel ómögulegt geti reynst fyrir korthafa að bregðast við slíku eftir á enda hafi hann samþykkt skilmálana með því að slá inn pin-númerið sitt. Greint er frá dæmi þar sem gengið var 290 íslenskar krónur fyrir evru í slíkum viðskiptum. VISA-gengi á evru sama dag hafi verið um 148 krónur. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 28. apríl.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Sjá meira