Valitor fær metsekt: Sektað um hálfan milljarð vegna samkeppnislagabrota ingvar haraldsson skrifar 28. apríl 2016 17:12 Viðar Þorkelsson er forstjóri Valitor. vísir
Hæstiréttur Íslands hefur hækkað sekt Valitor vegna samkeppnislagabrota úr 400 í 500 milljónir króna. Dómurinn var kveðinn upp fyrr í dag. Sektin er sú hæsta sem lagt hefur verið á íslenskt fyrirtæki vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu, samkvæmt því sem fram kemur á vef Samkeppniseftirlitsins.Valitor er talið hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína með aðgerðum sem beindust að keppinautum félagsins á markaði fyrir færsluhirðingu. Þá hafi Valitor einnig, brotið gegn tveimur skilyrðum sem félagið hafði skuldbundið sig til að hlíta með sátt við Samkeppniseftirlitið í fyrra máli. Til rökstuðnings hækkun sekta byggir Hæstiréttur meðal annars á því að brot fyrirtækisins hafi snert allan almenning í landinu, auk þess sem vísað er til þess að fjárhagslegur styrkleiki Valitors og ávinningur af starfseminni á brotatímabilinu hafi verið verulegur, samkvæmt því sem fram kemur á vef Samkeppniseftirlitsins. „Jafnframt er litið til þess að stjórnvaldssekt í fyrra máli hafi ekki skilað þeim árangri að Valitor léti af samkeppnisbrotum.“ Þá ber Valitor að greiða Samkeppniseftirlitinu 4 milljónir króna í málskostnað. Tildrög dómsins eru þau að í apríl 2013 sektaði Samkeppniseftirlitið Valitor hf. um 500 milljónir króna fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu og brot á skilyrðum fyrri ákvörðunar eftirlitsins. Var félagið talið hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína með aðgerðum sem beindust gegn keppinautum félagsins á markaði fyrir færsluhirðingu. Háttsemi Valitors var sögð hafa falist í því að fyrirtækið verðlagði þjónustu sína í færsluhirðingu vegna debetkorta undir breytilegum kostnaði. Með þessari undirverðlagningu var félagið talið líklegra til að fá samninga við söluaðila um færsluhirðingu vegna kreditkorta sem talin er arðsamari þjónusta. Samkeppniseftirlitið taldi umfang undirverðlagningarinnar verulegt.
Mest lesið „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent Fleiri fréttir Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Sjá meira