Skip HB Granda víkja úr höfninni á Akranesi fyrir tökuliði Fast 8 Svavar Hávarðsson skrifar 11. apríl 2016 07:00 Venus NS og Víkingur AK komnir í höfn í Reykjavík. Mynd/HB Grandi. Kristján Maack
Uppsjávarskipum HB Granda, Venusi NS og Víkingi AK, var siglt frá Akranesi til hafnar í Reykjavík til að rýma fyrir tökuliði Fast 8 – en skipin hafa legið við bryggju á Akranesi frá því að loðnuvertíð lauk. Akraneshöfn og Sementsverksmiðjan í bænum eru þeir tökustaðir sem taka við af rómuðu umhverfi Mývatns þar sem tökum er lokið. Að sögn Karls Sigurjónssonar, skipaeftirlitsmanns HB Granda á Akranesi, í frétt á heimasíðu fyrirtækisins, hefur hann verið í sambandi við forsvarsmenn True North, sem hefur haft veg og vanda af undirbúningi vegna töku myndarinnar hérlendis frá því um miðjan desember. Áður en haft var samband við HB Granda vegna skipanna í höfninni var True North búið að setja sig í samband við bæjarstjórann á Akranesi vegna töku myndarinnar í byggingu Sementsverksmiðjunnar. Þá verða upptökur einnig á hafnarsvæðinu. Þær hefjast 14. apríl og eiga að taka tvo daga. Síðan eru aðrir tveir dagar ætlaðir fyrir tökur í Hvalfirði, segir Karl, en að hans sögn voru Venus og Víkingur einfaldlega of stór skip fyrir leikmyndina á hafnarsvæðinu og þurftu því að víkja. Fyrst var rætt um að Lundey NS, sem liggur í höfninni, viki einnig en sú ósk var síðan dregin til baka. Bjarni Ólafsson AK er einnig í höfninni en hann virðist ekki vera fyrir kvikmyndagerðarmönnunum, segir Karl. Alls munu um 300 manns koma að upptöku Fast 8 á Akranesi og því má búast við að bæjarbragurinn breytist verulega eftir rúma viku, segir í fréttinni.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 11. apríl.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira