San Antonio vann og setti félagsmet | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. apríl 2016 11:03 Leonard skoraði 33 stig í nótt sem er persónulegt met hjá honum. vísir/getty
Fimm leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. San Antonio Spurs setti félagsmet þegar liðið vann sjö stiga sigur, 102-95, á Toronto Raptors á heimavelli. Þetta var 64. sigur San Antonio í vetur en áður hafði liðið mest unnið 63 leiki á einu tímabili (2005-06). Þetta var jafnframt 48. sigur San Antonio á heimavelli í röð. Kawhi Leonard skoraði 33 stig fyrir San Antonio, sem er það mesta sem hann hefur gert á ferlinum, og LaMarcus Aldridge skilaði 31 stigi og 15 fráköstum. Sex leikmenn Toronto skoruðu 10 stig eða meira í leiknum. Norman Powell var þeirra stigahæstur með 17 stig. Detroit Pistons gerði góða ferð til Chicago og vann fjögurra stiga sigur, 90-94, á heimamönnum. Reggie Jackson skoraði 22 stig fyrir Detroit sem er í 7. sæti Austurdeildarinnar. Jimmy Butler var með þrennu (28 stig, 17 fráköst og 12 stoðsendingar) í liði Chicago en það dugði ekki til sigurs. Liðið er í 9. sæti Austurdeildarinnar og þarf góðan endasprett til að komast í úrslitakeppnina. Þá vann Portland Trail Blazers góðan sigur á Miami Heat, 110-93. CJ McCollum skoraði 24 stig fyrir Portland en Hassan Whiteside var atkvæðamestur hjá Miami með 20 stig og 13 fráköst.Úrslitin í nótt:San Antonio 102-95 Toronto Chicago 90-94 Detroit Portland 110-93 Miami Philadelphia 102-115 Indiana Denver 106-115 SacramentoKawhi Leonard átti stórleik Jimmy Butler var heitur Flottustu tilþrif næturinnar
NBA Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Sjá meira