Innlent

Orkuveita Reykjavíkur fær nýjan stjórnarformann

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Brynhildur Davíðsdóttir verður formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur.
Brynhildur Davíðsdóttir verður formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur.
Brynhildur Davíðsdóttir mun taka við stjórnarformennsku í Orkuveitu Reykjavíkur af Haraldi Flosa Tryggvasyni á aðalfundi fyrirtækisins 18. apríl.

Jafnframt því að Haraldur Flosi gengur úr stjórn Orkuveitunnar mun Sigríður Rut Júlíusdóttir lögmaður taka sæti hans í stjórninni. Þetta var samþykkt á fundi borgarstjórnar á þriðjudaginn.

Um er að ræða skipti á fulltrúum sem meirihlutinn í borgarstjórn tilnefnir.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 7. apríl. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×