Hafa fundað stíft frá því í byrjun mars Óli Kristján Ármannsson skrifar 30. mars 2016 07:00 Fundur sjómanna og útgerðarmanna í Karphúsinu við Borgartún í Reykjavík í gær. Fréttablaðið/Vilhelm
Enn hefur ekki komið til þess að sjómenn hafi hafið undirbúning verkfallsaðgerða vegna yfirstandandi kjaraviðræðna við útgerðarmenn. „Við vildum láta reyna til þrautar áður en farið yrði í þá vegferð,“ segir Hólmgeir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjómannasambands Íslands. Samninganefndir Sjómannasambandsins og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) hittust á samningafundi um miðjan dag í gær. Hólmgeir segir að fundað hafi verið stíft síðustu vikur. „Við höfum verið að funda vikulega og rúmlega það síðan í byrjun mars,“ segir hann. Viðræður milli sjómanna, sem hafa verið samningslausir frá því í ársbyrjun 2011, og útgerðarmanna hófust aftur á síðasta ári, en upp úr þeim slitnaði í byrjun desember. Í kjölfarið og fram á nýja árið var kannaður hugur sjómanna, hjá aðildarfélögum þeirra, til hugsanlegra verkfallsaðgerða. „Og niðurstaðan hjá aðildarfélögum okkar var að menn væru alveg til í aðgerðir,“ segir Hólmgeir. En á meðan viðræður standi sé alltaf von til þess að saman náist og á meðan verði ekki farið í verkfallsaðgerðir. „Auðvitað vona menn að þetta klárist fremur en að farið verði í slagsmál, en það er svo sem ekkert komið í ljós enn þá.“ Þá segir Hólmgeir að viðræðurnar nú séu látnar snúast um hluti sem líklegt sé að menn geti náð saman um og ítrustu kröfur sem settar hafi verið fram, svo sem um aukna þátttöku sjómanna í kostnaði útgerðarfyrirtækja, séu því ekki undir. „Það er verið að skoða það sem helst þarf að klára og hvernig menn vinna á milli kjarasamninga.“
Mest lesið Eldur í bíl í Heiðmörk Innlent Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Innlent Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Erlent Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Erlent Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun Innlent Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Innlent Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Innlent Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Erlent Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Fleiri fréttir Eldur í bíl í Heiðmörk Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Ný umgjörð um daggæslu til skoðunar í ráðuneytinu Verkefnið sem hófst á Twitter stækkað umtalsvert Allir dómarar vanhæfir í máli ljósmóður á eftirlaunum Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Danir sigurvegarar og ofurfólk í Heiðmörk Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Sjá meira