Sport

Skaut óvart liðsfélaga sinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Pratt er hér á flugi í leik í vetur.
Pratt er hér á flugi í leik í vetur. vísir/getty
Leikmaður háskólaliðs Akron í Bandaríkjunum má teljast heppinn að vera á lífi eftir að hafa verið skotinn af liðsfélaga sínum.

Útherjinn Andrew Pratt fór í vitlausa íbúð aðfararnótt sunnudags og liðsfélagi hans, Scott Boyett, hélt að það væri innbrotsþjófur í íbúðinni.

Hann náði sér því í byssu og skaut manninn í íbúðinni. Er hann kveikti ljósin kom í ljós að félagi hans lá óvígur á gólfinu. Boyett hafði skotið hann í magann.

Hann dreif félagann með sér á sjúkrahús þar sem í ljós kom að Pratt hafði sloppið ótrúlega vel og var ekki í lífshættu. Hann mun ná fullum bata.

Lögreglan yfirheyrði báða og komst að því að þarna hefði verið um slys að ræða. Ekki var því kært í málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×