Jafngildir verkleysi í heil tvö ár Svavar Hávarðsson skrifar 22. mars 2016 07:00 Rúm 14 þúsund tonn af malbiki fara á götur Reykjavíkur í sumar. vísir/pjetur
Samdráttur í vegabótum Reykjavíkurborgar á fimm árum frá 2010 til 2014 jafngildir því að ekkert hafi verið framkvæmt í tvö ár eftir hrun miðað við framkvæmdir á jafn löngu tímabili árin fyrir hrun. Undanfarnar vikur hefur, líkt og á sama tíma í fyrra, verið fjallað um slæmt ástand og slit á gatnakerfi á höfuðborgarsvæðinu. Eins og Fréttablaðið greindi frá 9. mars varð þetta tilefni til þess að Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) lögðu til átak í viðhaldi og endurnýjun gatnakerfisins með aðkomu Vegagerðarinnar.Átakið fælist í sameiginlegri greiningu á ástandi, tillögum að framkvæmdaáætlun til næstu ára, samantekt rannsókna og annarra gagna um ástæður núverandi stöðu, malbikun og annað sem verkefninu viðkæmi og tillögugerð og umfjöllun um fjármögnun þess sem gera þyrfti. Efnislegri afgreiðslu aðildarsveitarfélaganna virðist ekki lokið, en hvatt var til þess að henni lyki eins fljótt og auðið er svo hefjast mætti handa í síðasta lagi 1. maí við að meta ástandið. Fjölmargar ástæður eru nefndar fyrir hinu bágborna ástandi. Tvær þær helstu eru óhagstætt veður og ekki síður að nauðsynlegt var að draga úr framkvæmdum í hámarki kreppunnar, en hrunið hafði ekki síst mikil áhrif á fjárhag sveitarfélaga. Einnig er bent á samhengi þessara þátta – veður var óhagstætt á allra versta tíma í ljósi samdráttar í viðhaldi. Tölfræði borgarinnar yfir malbiksframkvæmdir á tímabilinu 2004 til 2016 sýnir að á fimm árum, 2004 til 2008, var endurnýjun slitlags 83,2 kílómetrar – eða 16,6 kílómetrar að jafnaði á ári. Á þessu ári og í fyrra er einmitt lagt á 16,4 og 16,8 kílómetra. Á jafn löngu tímabili árin 2010 til 2014 var endurnýjun slitlaga 52,7 kílómetrar, eða 30,5 kílómetrum minna en í eðlilegu árferði. Því má segja að vegna sparnaðar hafi ekkert verið framkvæmt sem jafngildir framkvæmdum tveggja ára. Reykjavíkurborg ætlar í sumar að malbika sautján kílómetra af þeim 420 kílómetrum gatnakerfisins sem heyra undir hana. Ekki liggur fyrir hjá Vegagerðinni hversu umfangsmiklar endurbætur verða á þeim 100 kílómetrum af stofnbrautum innan borgarmarkanna sem eru á hennar forræði, en líklega verður minna fé varið til endurbóta en í fyrra þegar aukafjárveiting kom til. Eftir því sem næst verður komist verða það rúmlega 400 milljónir króna í ár á móti rúmlega 770 milljónum í fyrra. Í svari til Fréttablaðsins segir Vegagerðin að „það væri vissulega æskilegt að fá aukið fé í viðgerðir á þjóðvegum á höfuðborgarsvæðinu og viðhald þeirra, en það er ekkert í hendi varðandi það“.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 22. mars.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Fleiri fréttir Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Sjá meira