Verja 430 milljónum í umferðaröryggi Svavar Hávarðsson skrifar 24. mars 2016 07:00 60 milljónum verður varið í merkingar við einbreiðar brýr. fréttablaðið/pjetur
Vegagerðin, Samgöngustofa og Ríkislögreglustjóri munu verja 430 milljónum króna til margvíslegra aðgerða á sviði umferðaröryggis á árinu. Að ósk Ólafar Nordal innanríkisráðherra settu þessar tvær stofnanir og Ríkislögreglustjóri fram breyttar áætlanir og tillögur að verkefnum er lúta að umferðaröryggi þar sem ekki eru markaðar fjárveitingar í verkefnið á þessu ári á samgönguáætlun áranna 2013 til 2016. Samgöngustofa mun nota átján milljónir króna í umferðaröryggisverkefni auk þess sem öðrum verkefnum, sem ekki þarfnast viðbótarfjármagns, verður haldið áfram. Í uppfærðri áætlun er gert ráð fyrir að verja 84,5 milljónum í verkefni tengd umferðaröryggi vegfarenda. Fjármunirnir verða nýttir í sérstakt eftirlit lögreglu sem byggt er á skráningu svokallaðra svartra bletta, úrvinnslu gagna sem fást með löggæslumyndavélum, sjálfvirkt eftirlit, áróðursauglýsingar, fræðslu í grunnskólum og fræðslu fyrir erlenda ökumenn. Vegagerðin hefur ákveðið að setja alls 385 milljónir króna af viðhaldsfé stofnunarinnar í umferðaröryggismál, þar af 27 milljónir í sjálfvirkt eftirlit og fimmtán milljónir til úrvinnslu gagna sem fást með löggæslumyndavélum. Meðal verkefna Vegagerðarinnar samkvæmt uppfærðri áætlun er að 257 milljónum króna verði ráðstafað til margvíslegra aðgerða og úrbóta á vegakerfinu um land allt með áherslu á svartbletti og 60 milljónum varið í merkingar við einbreiðar brýr. Áætlun um einstök verkefni er í smíðum og er þeim forgangsraðað út frá slysatíðni og slysatölum um landið allt. Ríkislögreglustjóri mun skipuleggja sérstakt umferðareftirlit fyrir 27 milljónir sem annars vegar fást með fjármögnun á umferðareftirliti lögreglustjóranna á Suðurlandi, Vesturlandi og Norðurlandi eystra og hins vegar með 12 milljónum af sérstakri fjárveitingu innanríkisráðuneytisins til eflingar lögreglu.Fréttin birtist fyrst Fréttablaðinu 24. mars
Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Innlent Fleiri fréttir Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fætinum Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Sjá meira