Innlent

Boð í tengivirki undir áætlun

Svavar Hávarðsson skrifar
Tengivirki Landsnets við Búðarháls.
Tengivirki Landsnets við Búðarháls. Mynd/Landsnet
Tilboð í þrjú ný tengivirki Landsnets á Norðausturlandi eru 172 milljónum króna undir kostnaðarverði. Alls nemur kostnaðar­áætlun tengivirkjanna þriggja 1.921 milljón króna en lægstu tilboðin eru 1.749 milljónir, um 91 prósent af áætluðum kostnaði.

Útboðið tók til byggingar þriggja tengivirkja, í Kröflu, á Þeistareykjum og Bakka við Húsavík, en þau eru hluti þeirra nýframkvæmda sem Landsnet er að hefjast handa við á Norðausturlandi. Nýja tengivirkið í Kröflu, Kröflulína 4, og hluti tengivirkisins á Þeistareykjum munu tengja Þeistareykjavirkjun við meginflutningskerfi Landsnets en tengivirkið á Bakka, Þeistareykjalína 1, ásamt hluta Þeistareykjatengivirkisins munu tengja iðnaðarsvæðið á Bakka við virkjunina.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 24. mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×