Innlent

Kominn í hendur björgunarsveitarmanna

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Maðurinn með björgunarsveitarmönnum.
Maðurinn með björgunarsveitarmönnum. mynd/landsbjörg
Maðurinn sem óskaði eftir aðstoð rétt vestan við Dettifoss í dag er kominn í hendur björgunarsveitarmanna og verður kominn til byggða um kvöldmatarleyti.

Í tilkynningu frá Landsbjörg segir að þrátt fyrir algjöra blindu hafi björgunarmönnum fljótt tekist að finna manninn. Hann var á snjóþrúgum og dró á eftir sér sleða með farangrinum. Áætlunin var að ganga um hálendið á næstunni en vegna þess hversu djúpt hann sökk í snjóinn gekk ferðin afar hægt. Hann óskaði því eftir aðstoð og var björgunarsveitin Stefán í Mývatnssveit kölluð út.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×