Innlent

Stjórnvöld uppfylli lagalega skyldu sína

Svavar Hávarðsson skrifar
Urðun er meiri hérlendis en í nágrannalöndum.
Urðun er meiri hérlendis en í nágrannalöndum. vísir/valli
Almenn stefna um meðhöndlun úrgangs hefur ekki verið mótuð þó stjórnvöldum beri til þess lagaleg skylda. Í nýrri skýrslu til Alþingis hvetur Ríkisendurskoðun umhverfis- og auðlindaráðuneytið til að ráða bót á þessu.

Í skýrslunni segir að Ísland standist ekki að öllu leyti samanburð við nágrannaríkin þegar kemur að meðhöndlun heimilisúrgangs, þrátt fyrir ákveðin skref í rétta átt. Urðun heimilis­úrgangs sé t.d. meiri hér en annars staðar á Norðurlöndum. Á móti sé sorpbrennsla hér mun minni.

Fram kemur að stjórnvöldum beri að móta almenna stefnu um meðhöndlun úrgangs. Ríkisendurskoðun hvetur ráðuneytið til að ljúka hið fyrsta gerð slíkrar stefnu sem gildi fyrir landið allt, með tímasettri áætlun um aðgerðir og fjárframlög.

Fram kemur í skýrslunni að vísbendingar séu um að svæðisáætlanir sveitarfélaganna séu ekki það stjórntæki sem þeim er ætlað að vera. Þá skorti á að stjórnvöld fylgi því eftir að áætlanirnar séu gerðar og þeim fylgt. Ríkisendurskoðun hvetur ráðuneytið til að bæta úr þessu. Einnig þurfi ráðuneytið að stuðla að aukinni og samræmdri flokkun heimilisúrgangs á landsvísu.

Í skýrslunni er bent á að Umhverfisstofnun eigi lögum samkvæmt meðal annars að upplýsa og fræða almenning um meðhöndlun heimilisúrgangs í samvinnu við sveitarfélögin. Stofnunin hafi þó ekki sinnt þessu verkefni sem skyldi þar sem hún fái enga fjármuni til þess. Ríkisendurskoðun hvetur stjórnvöld til að sjá til þess að Umhverfisstofnun geti sinnt þessu lögbundna verkefni sínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×