Innlent

Samfylkingin samþykkir flókna leið við val næsta formanns

Heimir Már Pétursson skrifar
Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar í Iðnó í dag samþykkti reglur sem þýða að sá möguleiki er fyrir hendi að frambjóðandi til formanns sem ekki er nefndur oftast í fyrsta vali verði engu að síður formaður.

Kjörstjórn formannskosninganna lagði til að horfið yrði frá svo kallaðri írskri reglu í formannskjörinu en breytingartillaga um að írska leiðin yrði notuð var hins vegar samþykkt á flokksstjórnarfundi í dag. Samkvæmt þeirri reglu verður frambjóðandi að hafa yfir 50 prósent atkvæða á bak við sig. Kjósendur merkja við alla frambjóðendur með tölustöfum eftir fjölda frambjóðenda.

Gefum okkur að frambjóðendur verði fjórir, A, B, C og D. og heildaratkvæðafjöldi í formannskjöri séu þúsund. Frambjóðandi þarf því 501 atkvæði til að verða formaður.Gefur okkur að frambjóðandi A sé oftast gefinn tölustafurinn einn, eða 450 sinnum og því vilji flestir hann í fyrsta vali en hvorki hann né aðrir komist yfir 50 prósentin.Í þessari stöðu yrði horft til fyrsta og annars vals.

Þá gæti farið svo að A og B hefðu  oftast verið valdir en næðu engu að síður hvorugur kjöri þar sem þeir næðu hvorugur enn yfir 50 prósentum atkvæða og C og D væru töluvert sjaldnar valdir. Þá yrði horft til fyrsta, annars og þriðja vals og í þessu dæmi hefði C mjög oft verið valinn í þriðja vali og því með fleiri atkvæði en hinir tveir hefðu á bak við sig og því yrði C formaður.

Þessi regla hefur verið notuð í forsetakosningum á Írlandi og leitt til þess að sá sem var oftast valinn í fyrsta vali varð ekki forseti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×