Innlent

Fleiri barnaverndarmál vegna heimilisofbeldis

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Tilkynntu ofbeldi er skipt í tilfinningalegt ofbeldi, þar með heimilisofbeldi, líkamlegt og kynferðislegt.­ Tilkynningum hefur fjölgað í öllum flokkum.
Tilkynntu ofbeldi er skipt í tilfinningalegt ofbeldi, þar með heimilisofbeldi, líkamlegt og kynferðislegt.­ Tilkynningum hefur fjölgað í öllum flokkum. Fréttablaðið/Vilhelm
Tilkynningum til barnaverndarnefnda fækkaði um rúm fjögur prósent milli 2014 og 2015. Þær voru 8.519 á síðasta ári

Flestar tilkynningar koma vegna vanrækslu eða tæplega 38 prósent. Næst kemur vegna áhættuhegðunar eða tæplega 36 prósent og þriðji stærsti flokkurinn er vegna ofbeldismála eða um fjórðungur.

Páll Ólafsson, sviðsstjori ráðgjafa- og fræðslusviðs Barnaverndarstofu. Fréttablaðið/Anton brink
Tilkynningum vegna ofbeldis fjölgaði um 9,5 prósent milli ára.Það er eini flokkurinn þar sem tilkynningum fjölgar. Þar af hefur tilkynningum vegna heimilisofbeldis fjölgað mest, um tæp 26 prósent , farið úr 497 í 625 á ári.

Páll Ólafsson, sviðsstjóri ráðgjafa- og fræðslusviðs Barnaverndarstofu, segir fylgst vel með þessari þróun. Eðlilegt sé að tilkynningum vegna heimilisofbeldis fjölgi vegna þess að viðbrögðum við heimilisofbeldi hafi verið breytt á höfuðborgarsvæðinu.

„Áður fór lögregla ein inn á heimilið en nú fara starfsmenn Félagsþjónustunnar og Barnaverndar með til að vinna með fjölskyldunni og sinna börnunum,“ segir Páll.

Tilkynningum vegna vanrækslu fækkar, sérstaklega tilkynningum vegna áhættuhegðunar barna. Undir hana fellur neysla barns á vímuefnum, ef barn stefnir eigin heilsu og þroska í hættu, afbrot barns, ef barn beitir ofbeldi og erfiðleikar barns í skóla.

„Þetta eru tilkynningar sem snúa að unglingum og það að þeim fækki er þróun sem hefur verið í gangi undanfarin ár,“ segir Páll Ólafsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×