Nauðungarvistaður á geðdeild í Reykjavík í kjölfar skothríðar á Akureyri Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 14. mars 2016 10:59 Úr anddyri íbúðarinnar. vísir
Maður sem hóf skothríð á heimili nágrannakonu sinnar á Akureyri í fyrrinótt verður nauðungarvistaður á geðdeild í Reykjavík en verið er að flytja hann þangað núna. Lögreglan hyggst ekki fara fram á gæsluvarðhald yfir honum en ekki var hægt að yfirheyra hann í gær þar sem hann var í geðrofi. „Við munum heldur ekkert geta talað við hann í dag þar sem hann er einfaldlega mjög veikur,“ segir Eyþór Þorbergsson, fulltrúi lögreglustjórans á Norðurlandi eystra. Hann segir að búið sé að ræða við aðra aðila málsins og rannsókn þess sé að mestu lokið, fyrir utan það að enn eigi eftir að yfirheyra manninn.Sakhæfi mannsins verður metið „Það liggur alveg ljóst fyrir að mínu mati hvað gerðist en þegar maðurinn er kominn í stabílt ástand þá reiknum við frekar með að hann komi aftur hingað norður svo hægt sé að ljúka rannsókn. Hvenær það hins vegar verður liggur ekki fyrir,“ segir Eyþór. Aðspurður hvort sakhæfi mannsins verði metið við rannsókn málsins segir Eyþór að það verði gert. Málið kom upp um klukkan hálftvö aðfaranótt sunnudags. Þá um leið fór sérsveitarmaður frá Ríkislögreglustjóra á staðinn þar sem nokkrir þeirra eru staðsettir á Akureyri. Um fimmleytið lenti síðan þyrla Landhelgisgæslunnar með aukamannskap frá sérsveitinni en skömmu síðar gekk maðurinn út úr íbúð sinni skotvopnalaus og gaf sig fram. Maðurinn skaut alls fjórum skotum úr haglabyssu úr íbúð sinni á íbúð nágrannakonu sinnar en skotin höfnuðu meðal annars í mannlausri bifreið fyrir utan húsið. Engan sakaði. Maðurinn hefur ekki komið við sögu lögreglu áður og þá þekkjast hann og nágrannakona hans ekki neitt. Árásin virðist ekki hafa átt sér neinn aðdraganda.
Tengdar fréttir Almenna lögreglan á Akureyri vopnaðist Lögregla tryggði að ekki væri hægt að komast að íbúð konunnar, sem var þar á meðan umsátrinu stóð. 13. mars 2016 12:58 Umsátur á Akureyri: Skaut á íbúð nágrannakonu Maður sem skaut úr haglabyssu á íbúð nágranna síns í nótt hefur verið handtekinn. Árásin virðist tilefnislaus. 13. mars 2016 10:58 Umsátur á Akureyri: Maðurinn ekki áður komið við sögu lögreglu Maðurinn er sagður andlega veikur og er unnið að því að hann fái viðeigandi heilbrigðisþjónustu. 13. mars 2016 11:55 Mest lesið Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Innlent Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Erlent Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Innlent Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Innlent „Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Innlent Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Innlent Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Erlent Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Erlent Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Innlent Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Erlent Fleiri fréttir Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Einn handtekinn vegna líkamsárasar Gosmóða mældist í Hvalfirði og á Vík í Mýrdal Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Þorgerður styður stofnun leyniþjónustu Síðustu þrjú banaslys orðið á sama stað við sömu aðstæður „Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Þurfum ekki að loka landamærum en þurfum að opna augun Leggjast yfir hvað megi bæta í Reynisfjöru „Við erum auðvitað mjög slegin yfir þessu slysi“ Fullt af furðubátum keppa á Flúðum í dag Níu ára stúlka frá Þýskalandi sem lést Tilkynnt um þrjár líkamsárásir en flestir gestir „vel búnir, kurteisir og til fyrirmyndar“ Vinnsla stöðvuð í Vatnsfellsvirkjun vegna leka Ekki hlynntur lokun Reynisfjöru og líkamsárásir um helgina Meistaraverkefni sem endaði í The Lancet: „Af hverju ekki að miða hátt?“ Herjólfur siglir í dag Bandaríkin, innflytjendur og Gasa á Sprengisandi Olli slysi undir áhrifum fíkniefna Vestmanneyingar „slógu velferðarskjaldborg“ yfir gesti Búast við gasi á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi Landsvirkjun sé ekki „löngu búin að semja“ við alla landeigendur Fagna afmæli virkjunar sem sökkti sveitajörðum en rafvæddi síldarbæ Kvenfólkið í Eyjum bjargaði deginum Skinkur og Sykurpabbar skemmta sér á Egilsstöðum Blússandi stemning á harmonikkuhátíð á Borg Stúlkan sem fór í sjóinn er látin Sjá meira
Almenna lögreglan á Akureyri vopnaðist Lögregla tryggði að ekki væri hægt að komast að íbúð konunnar, sem var þar á meðan umsátrinu stóð. 13. mars 2016 12:58
Umsátur á Akureyri: Skaut á íbúð nágrannakonu Maður sem skaut úr haglabyssu á íbúð nágranna síns í nótt hefur verið handtekinn. Árásin virðist tilefnislaus. 13. mars 2016 10:58
Umsátur á Akureyri: Maðurinn ekki áður komið við sögu lögreglu Maðurinn er sagður andlega veikur og er unnið að því að hann fái viðeigandi heilbrigðisþjónustu. 13. mars 2016 11:55