Blautir kossar helsta umræðuefnið eftir Samfés sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 15. mars 2016 09:00 Klámfengin umræða einkennir samræður grunnskólanema sem sóttu SamFestinginn. Framkvæmdastjóri Samfés segist hafa áhyggjur af því að varasamt fólk taki þátt í umræðunum. vísir/anton
Sleikur virðist helsta umræðuefni grunnskólanema sem sóttu SamFestinginn, unglingaskemmtun sem fram fór í Laugardalshöll fyrr í þessum mánuði. Opnuð hefur verið Facebook-síða þar sem til stóð að ræða keppnina en umræðan hefur hins vegar vijað hverfast nánast alfarið um blauta kossa eða sleik: Hver kyssti flesta ásamt því sem birtar eru myndir af kossaflensinu. Victor Berg Guðmundsson, framkvæmastjóri Samfés, hefur áhyggjur af því að einelti geti þrifist í slíkum hópum.Varasamt fólk geti leynst inni í slíkum hópum „Það þarf engan sérfræðing til að sjá hvað er að gerast á þessum síðum. Það má alveg segja að við teljum þessar grúppur mun varasamari, það er verið að birta ýmislegt á þessum grúppum, verið að búa til sögur um fólk og þar fram eftir götunum,“ segir hann. Victor segist hafa mestar áhyggjur af því að inni á síðunni leynist fólk sem ekki eigi heima þar. „Það er mikið af fólki inni á svona lokuðum síðum og ekki mögulegt fyrir okkur né aðra að ritskoða það sem þar fer fram.“Sérstaklega tekið á einelti í ár Hann segir að í ár hafi verið tekið sérstaklega á einelti, ásamt því sem krakkarnir fengu jafningjafræðslu og frædd um svokallað „sexting“, sem er þegar einstaklingar senda eða fá sendar kynferðislegar myndir eða texta rafrænt. Aðspurður segist Victor ekki hafa fengið á borð til sín kvartanir vegna myndbirtinga, en á síðunni er að finna myndir af krökkum kyssast, sem virðast birtar í leyfisleysi. Hann segir hins vegar að í félagsmiðstöðvum hafi farið fram upplýst umræða um þessi mál. Tæplega 3.200 manns eru meðlimir í hópnum, sem stofnaður var í aðdraganda SamFestingsins. Hér fyrir neðan eru nokkur dæmi um ummæli sem finna má á síðunni, en flest eru þau á eina leið; þau snúast um blauta kossa. Þá hefur jafnframt orðið nokkur umræða um kynlíf og umræðan oft nokkuð klámfengin.„hey hver fórímig, hann var ljóshærður með hvíta derruVinkona mín fékk nokkrar sexý tungur uppí sig og langar virkilega að vita hverjir eru eigendur þessara tunga, ef að þú manst eftir að hafa stungið einu stykki tungu uppí hana máttu endilega commenta eða senda PMJæja strákar kannast eh við að stinga tungunni uppi þessa skvísku?Þessi fór í 21 gellu og vill komast að því hvað þær heitaÞessi felli fór í 7 og vill finna þær.. Endilega cmt ef þið vitið hverjar hann fór í“
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Sjá meira