Mál á hendur Gunnari í Krossinum fellt niður Atli Ísleifsson skrifar 19. mars 2016 12:21 Gunnar Þorsteinsson, kenndur við Krossinn. Vísir/vilhelm
Kæra vegna fjármálamisferlis á hendur Gunnari Þorsteinssyni, oftast kenndur við Krossinn, hefur verið felld niður. Stjórn áfangaheimilisins Krossgatna sendi erindi til embættis sérstaks saksóknara í mars 2014 þar sem þess var óskað að fram færi opinber rannsókn á fjármálum og bókhaldi Krossgatna á árunum 2008 til 2002 og viðskiptum við tengda aðila.Á ekki orð til að lýsa þakklæti sínu Gunnar segist í tilkynningu ekki eiga orð til að lýsa þakklæti sínu, en á sama tíma undrist hann hvernig hægt sé að búa til mál af þessu tagi, sem sé forsendulaust og fari með himinskautum í fjölmiðlum með það markmið að gera atlögu að æru manns. „Þeir sem reiddu hátt til höggs sitja uppi með þessa ósvinnu,“ segir Gunnar.Hlaut réttarstöðu sakbornings Í erindi stjórnar Krossgatna sagði að hún hefði fengið óháðan aðila til að annast frumúttekt á bókhaldi og að sú skýrsla hafi gefið tilefni til að málið yrði skoðað nánar af hálfu hins opinberra. Gunnar hlaut réttarstöðu sakbornings og var yfirheyrður í byrjun desember síðastliðinn. Í bréfi héraðssaksóknara til Gunnars, sem dagsett er 10. mars, kemur fram að rannsókn sé nú lokið og að mati ákæruvalds teljist það sem fram hafi komið ekki nægjanlegt eða líklegt til sakfellis og hafi málið því verið fellt niður.Vildi láta kanna hvort stofnunin hafi greitt kostnað við skilnað Gunnars Í bréfinu segir jafnframt að í erindi stjórnar Krossgatna hafi verið „rakin nokkur dæmi um ýmsa lausafjármuni á borð við þvottavélar, kæliskápa, þurrkara, sjónvörp og fleiri heimilistæki sem hafi verið keypt og hafi ekki skilað sér til sjálfseignarstofnunarinnar að því er stjórnin best viti.“ Stjórnin vildi einnig láta kanna hvort sjálfseignarstofnunin hafi að einhverju leyti greitt kostnað við skilnað Gunnars og eldsneytisúttektir Gunnars og „skyldra aðila, viðskipti með bifreiðir o.fl.“ Kærandi getur borið ákvörðunina um niðurfellingu málsins undir embætti ríkissaksóknara innan eins mánaðar.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Fleiri fréttir Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Sjá meira