Líkur á að Verkalýðshreyfingin stofni húsnæðissamvinnufélag Heimir Már Pétursson skrifar 2. mars 2016 18:39
Alþýðusambandið tilkynnir væntanlega á næstunni um stofnun húsnæðissamvinnufélags til að sjá um uppbyggingu og rekstur þúsunda íbúða fyrir launafólk. Forseti Alþýðusambandsins segir þörf á allt að þrjátíu þúsund íbúðum fyrir launafólk í landinu og segir verkalýðshreyfinguna sakna verkamannabústaðanna. Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra er nú með nokkur húsnæðisfrumvörp fyrir Alþingi, meðal annars um félagslega leigukerfið. Verkalýðshreyfingin hefur vakið athygli á því misserum saman að mikil þörf sé á ódýru húsnæði fyrir launafólk og í tengslum við gerð síðustu kjarasamninga skuldbatt ríkið sig til að byggðar verði 2.300 félagslegar íbúðir á næstu fjórum árum. Gylfi Arnbjörnsson forseti Alþýðusambandsins segir að þar á bæ hafi menn verið að skoða hverjir gætu tekið að sér rekstur húsnæðissamvinnufélags fyrir launafólk á landsvísu, jafnvel verkalýðshreyfingin sjálf. „Ég vil ekki útiloka það. Menn hafa bara verið að skoða með hvaða hætti hreyfingin geti stutt við bakið á því. Við viljum tryggja að minnsta kosti að það verði hægt að mæta þessum lögum og tryggja þá framboð af leiguhúsnæði fyrir tekjulægstu hópana,“ sagði Gylfi að loknum miðstjórnarfundi í dag þar sem þetta var var rætt. Forseti ASÍ minnir á að það hafi gerst áður í sögu verkalýðshreyfingarinnar að hún hefði frumkvæði að lausn húsnæðismála launafólks með uppbyggingu verkamannabústaða og Breiðholtsins á sínum tíma en ASI er hundrað ára um þessar mundir. „Við teljum þetta verkefni vera okkur skylt. Þetta eru okkar félagsmenn sem málið snýst um. Við erum bara að leita hófana með hvaða hætti við getum tryggt að þessi lög, þegar þau verða samþykkt, verði þá nýtt til að skapa framboð af ódýru húsnæði,“ segir forseti ASÍ.Verkalýðshreyfingin saknar verkamannabústaðanna Húsnæðissamvinnufélag sem þetta þyrfti að ná samningum við sveitarfélög um ódýrar lóðir en samkvæmt frumvarpi ráðherra kæmi ríkið með 18 prósenta stofnframlag til byggingar húsnæðis sem þessa. Gylfi hefur sagt að það hafi verið mikil mistök að einkavæða íbúðirnar í verkamannabústaðakerfinu á sínum tíma. „Það er rétt hjá þér. Við söknum þess einfaldlega og okkar fólk saknar þess kerfis. Þess vegna viljum við koma slíku á aftur og leita leiða til þess. Ég held að það sé vilji til þess í hreyfingunni að við kæmum að því með einhverjum hætti,“ segir Gylfi. Húsnæðisfélag sem þetta gæti hugsanlega tekið að sér helming þeirra 2.300 íbúða sem rætt var um í kjarasamningum en þetta sé langtímaverkefni því þörfin sé mjög mikil. „Já, við höfum reyndar talið að það þurfi vel á þriðja tug þúsunda íbúða til að mæta þeim þörfum. Þannig að ég hygg að við séum praktísk í því að það muni taka mér liggur við að segja mannsaldur að koma því framboði á,“ segir Gylfi Arnbjörnsson.
Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Sjá meira