Fokk ofbeldi Benjamín Sigurgeirsson skrifar 9. mars 2016 10:30 UN Women á Íslandi kynntu fyrir stuttu húfu til sölu sem ber merkið FO. FO stendur fyrir Fokk Ofbeldi og er átakinu ætlað að vekja athygli og koma í veg fyrir kynbundið ofbeldi gegn konum. Kynbundið ofbeldi gegn konum er gífurlegt mannréttindabrot og er átakinu í ár beint að konum á flótta. UN Women á Íslandi benda á að konur á flótta hafi ekki verið fleiri síðan við lok seinni heimstyrjaldarinnar og þar sem margar þeirra eru einar á báti eru þær í mikilli áhættu á að verða fórnarlömb kynferðisofbeldis, mansals og annars ofbeldis. Fólk á Íslandi brást heldur betur við þessu átaki og eru FO húfunar fyrir löngu orðnar uppseldar en ágóðinn fer í að styrkja hjálparstarf við landamæri í Evrópu meðal annars til að tryggja konum öruggt athvarf. Fólk á Íslandi hefur greinilega óbeit á ofbeldi og hikar ekki við að gefa því fingurinn með því að splæsa í húfu og það er frábært. Þegar maður heyrir af þessu ofbeldi gagnvart konum þá fyllist maður vanmætti því það virðist vera lítið í manns valdi sem unnt er að gera til að bæta þetta ólíðandi ástand. Það er því gott þegar samtök eins og UN Women á Íslandi gefa almenningi kost á að leggja eitthvað af mörkum til að gefa ofbeldinu fingurinn. En ofbeldi einskorðast ekki við konur á flótta í stríðshrjáðum löndum og ef til vill getur fólk á Íslandi lagt enn meir á vogarskálarnar til að gefa öðru ofbeldi fingurinn því það er svo sannarlega meira ofbeldi sem má fokka sér. Það er til dæmis gífurlegt ofbeldi sem grasserast í kringum ólögleg fíkniefni. Nærtæk dæmi frá Íslandi eru t.d. þegar lögreglan misbeitti valdi sínu til að leita innanklæða á 16 ára stúlku (1), þegar tollverðir misbeittu valdi sínu við grófa og óþarfa leit á karlmanni (2) og þegar spænsk kona var þvinguð til að troða fíkniefnum upp í leggöngin á sér og flytja til Íslands aðeins til að vera tekin til fanga hér og dæmd í fangelsi (3). Þetta er aðeins brotabrot af því ofbeldi sem á sér stað í kringum ólögleg fíkniefni á Íslandi. Fyrir utan landsteinana er þetta ofbeldi í kringum ólögleg fíkniefni mun stórtækara og sum lönd sem framfylgja hörðum dómum og jafnvel dauðarefsingum fyrir brot á fíkniefnaólögum (4). Í Bandaríkjunum er gífurlegur fjöldi fólks sem situr í fangelsi fyrir fíkniefnabrot sem mörg hver eru smávægileg. Ólögleg starfsemi og skortur á regluverki í kringum fíkniefni felur í sér ómælda fjárhagslega hagsmuni glæpagengja sem mörg hver eru uppspretta ofbeldis um alla jörð. Mikið af því ofbeldi sem fylgir ólöglegum fíkniefnum myndi gjörsamlega fokkast upp ef lögum yrði breytt og komið á regluverki með sölu þeirra. Ekki ólíkt því sem við gerum nú þegar með áfengi, en mörg þeirra efna sem nú eru ólögleg eru töluvert skaðminni einstaklingum og samfélagi heldur en áfengi (5). Einnig myndi skapast gífurlegar skattekjur í kjölfarið eins og hefur sést í kjölfar lögleiðingar kannabisefna í Coloradofylki Bandaríkjanna (6). Slík aukning á skattekjum á Íslandi gæti reynst traustur bandamaður í endurræsingu á heilbrigðiskerfinu sem hefur verið til umræðu undanfarið (7). Annað ofbeldi sem viðgengst nær óhindrað nær alls staðar á jörðinni er ofbeldi gagnvart ómennskum dýrum. Ofbeldi gagnvart ómennskum dýrum, sem réttlætt er með þeim meinta tilgangi að það sé nauðsynlegt til að fólk fái næringu, er af þvílíkri stærðargráðu að á jörðinni eru fórnarlömbin talin í hundruðum milljónum. Á dag. Einnig er ofbeldið gagnvart þessum dýrum svo hrottalegt að fólk kemst ekki hálfa leið með að reyna að skilja þá skelfingu sem þau upplifa. Ofbeldi sem ómennsk dýr verða fyrir fær engan fingur heldur þrífst það í skjóli fjöldans sem með hegðun sinni og mataræði eru sjálf hluti af ofbeldinu. Þegar fólki er bent á hvernig það framfleitir ofbeldi með þessum hætti er það jafnvel líklegra að segja fokk jú frekar en fokk ofbeldi. Ofbeldi gagnvart ómennskum dýrum, líkt og ofbeldi gagnvart mannfólki, er oft kynbundið og beinist í meiri og grófari mæli gagnvært kvenkyns dýrum. Þannig eru gylltur og kýr skorðaðar í bása og frjóvgaðar reglulega af mannavöldum en sambærileg brot gagnvart konum væru aðeins framkvæmanleg af skrímslum og vonandi eingöngu til í hryllingsmyndum (8). Þessi þvingaða frjóvgun er gerð í þeim tilgangi að gylltur fæði grísi svo fólk geti fengið skinku og beikon og að kýr fæði kálfa svo fólk geti fengið mjólkina þeirra. Reglulega birtast fréttir af slæmum meðferðum dýra erlendis frá (9,10) en aðstæður dýra eru einnig afleitar hér á landi (11,12). Og nema maður sé staðfastur í að ljúga að sjálfum sér þá getur maður verið þess fullviss um að ofbeldið er mun meira en það sem ratar á síður fjölmiðlanna. Maður spyr sig því: Hvar er fokk ofbeldi þegar það kemur að svínum, kúm og hænum? Ólíkt mörgu ofbeldi sem viðgengst þá er fólki verulegt vald sett til að takmarka ofbeldi gagnvart ómennskum dýrum með því einu að taka ekki þátt í því. Með því að borða ekki dýr eða dýraafurðir. Með því setur fólk skýrt fokkmerki á ofbeldi. Ofbeldi einkennist ekki af nokkrum skúrkum eða einstaka hetjum heldur einna helst þeim fjölda fórnarlamba sem fyrir því verða. Við getum gert betur í að fækka fórnarlömbum ofbeldis. Við getum sagt fokk ofbeldi og afnumið þau ólög sem nú gilda um ólögleg fíkniefni og hafa verið misbeitt til að réttlæta hræðilegt ofbeldi. Við getum sagt fokk ofbeldi og borðað færri dýr og fleiri plöntur. Svo getum við keypt FO húfur af UN Women á Íslandi.Heimildir: (1) http://www.dv.is/frettir/2016/1/12/handtaka-16-ara-stulku-kaerd-logregluthjonn-skodadi- kynfaeri-hennar-og-rass/ (2) https://skorrdal.net/velkominn-til-islands-fardu-ur-fotunum/ (3) https://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/12/20/trodu_fikniefnum_inn_i_leggongin/ (4) http://www.theguardian.com/world/2016/feb/26/all-adult-males-in-one-iranian-village-executed-for-drug-offences-official-says (5) https://www.crimeandjustice.org.uk/publications/estimating-drug-harms-risky-business (6) https://www.drugpolicy.org/sites/default/files/Colorado_Marijuana_Legalization_One_Year_Status_Report.pdf (7) https://www.endurreisn.is/ (8) https://vimeo.com/150941714 (9) http://www.mbl.is/frettir/erlent/2016/02/23/hryllileg_medferd_a_dyrum/ (10) https://www.dv.is/frettir/2015/10/25/slaandi-myndir-fra-bresku-svinabui/ (11) http://kvennabladid.is/2015/10/15/svinin-okkar-eru-adthrengd-svelt-pyntud-og-veik-haettum-ad- borda-svinakjot/ (12) /g/2016160309946 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tengdar fréttir Engin haldbær rök fyrir áframhaldandi lögbanni á kannabis Höfnum fáfræði og fávisku. Spornum við fordómum. Sýnum skynsemi. Verum til fyrirmyndar. Lögleiðum kannabis. 22. september 2014 07:00 Meðferð dýra til manneldis óverjandi Til þess að viðhalda meintum lífsgæðum, halda uppi hefðum eða vegna vanafestu mannsins þurfa ótal ómennsk dýr að lifa við óviðunandi aðstæður sem fela í sér óþarfa þjáningar og sársauka. 19. nóvember 2014 15:28 Mest lesið Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Treystum foreldrum Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Treystum foreldrum Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson skrifar Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Dauði eða ofsakvíði? Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjaldið: aukin skattheimta á þá sem minna mega sín? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson skrifar Skoðun Sjálfsmynd þjóðar Steinar Harðarson skrifar Skoðun Viltu ná niður þinni eigin verðbólgu? Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvenær hætta börn að rétta upp hönd? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar hljóð og mynd fara ekki saman Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Beiting helmingaskiptareglunnar við fjárskipti hjóna Sveinn Ævar Sveinsson skrifar Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson skrifar Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sterkari saman og til þjónustu reiðubúin Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Hver heldur á fjarstýringunni í íslensku samfélagi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvar býrðu? Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Ísland selur sig ekki sjálft – og óvissa selur ekkert Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Föstudagurinn langi spyr: stöndum við með týndu börnunum okkar? Steinþór Þórarinsson skrifar Skoðun Lágir skattar og góð þjónusta fara saman í Kópavogi Guðmundur Jóhann Jónsson skrifar Skoðun Píeta samtökin 10 ára – samstaða um von Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Markaðsöflin græða meðan börnin tapa Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Sjá meira
Engin haldbær rök fyrir áframhaldandi lögbanni á kannabis Höfnum fáfræði og fávisku. Spornum við fordómum. Sýnum skynsemi. Verum til fyrirmyndar. Lögleiðum kannabis. 22. september 2014 07:00
Meðferð dýra til manneldis óverjandi Til þess að viðhalda meintum lífsgæðum, halda uppi hefðum eða vegna vanafestu mannsins þurfa ótal ómennsk dýr að lifa við óviðunandi aðstæður sem fela í sér óþarfa þjáningar og sársauka. 19. nóvember 2014 15:28
Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar