Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar 5. október 2026 12:01 Afkoma fyrirtækja byggir að stórum hluta á því að skapa og nýta tekjutækifæri. Þegar kemur að tekjuöfluninni líta margir svo á að það sé einkamál söludeilda. En er það endilega rétt? Í flestum fyrirtækjum er fjöldi starfsmanna í reglulegum samskiptum við viðskiptavini án þess að starfa við sölu. Það getur verið fólk í þjónustu, ráðgjöf, dreifingu, verkefnavinnu, tæknistörfum eða öðrum sérfræðihlutverkum. Þetta fólk heyrir oft hluti sem sölufólkið heyrir aldrei. Viðskiptavinir segja frá vandamálum, óskum, fyrirætlunum og áskorunum og þar geta leynst verðmæt tækifæri. Ég varð sjálfur vitni að því fyrir nokkrum árum hversu auðveldlega slíkt tækifæri getur glatast. Fyrirtæki sem ég starfaði hjá var í viðskiptum við símafyrirtæki sem sendi tæknimann til okkar til að tengja búnað. Þegar hann var að ljúka verkinu benti hann mér á nokkur atriði sem mætti bæta, meðal annars til að auka hraða og stöðugleika nettengingarinnar. Mér leist vel á hugmyndirnar og bað hann að senda mér nánari upplýsingar. Þær bárust aldrei. Um ári síðar hringdi viðskiptastjóri símafyrirtækisins og spurði hvort fyrirtækið gæti gert eitthvað betur fyrir okkur. Þá mundi ég að tæknimaðurinn hafði nefnt ýmislegt árið áður, en mundi ekki lengur nákvæmlega hvað. Þarna hafði tækifæri glatast. Ég sat áfram með hægara og óstöðugra net, símafyrirtækið missti af viðskiptum og tæknimaðurinn fékk minni vinnu. Það hefði ekki þurft flókið sölukerfi til að breyta niðurstöðunni. Tæknimaðurinn hefði einfaldlega getað skráð nokkrar línur eftir heimsóknina og komið þeim áfram til viðskiptastjórans meðan allt var enn ferskt í minni. Þetta litla dæmi segir stærri sögu. Mörg fyrirtæki hafa mun fleiri „augu og eyru“ á markaðnum en þau gera sér grein fyrir. Starfsmenn sem hitta viðskiptavini daglega fá upplýsingar sem geta skipt miklu máli fyrir þjónustu, vöruþróun og sölu. Vandinn er oft sá að ekkert einfalt ferli er til staðar til að grípa þær. Það þarf ekki að kenna öllum að selja. Mikilvægara er að fólk kunni að hlusta, spyrja réttu spurninganna og þekkja þegar viðskiptavinur lýsir þörf sem fyrirtækið getur leyst. Síðan þarf leiðin áfram að vera einföld: Hver tekur við upplýsingunum? Hvar eru þær skráðar? Hver fylgir málinu eftir og hversu hratt? Ef vara eða þjónusta getur skapað viðskiptavininum raunverulegan ávinning er það ekki aðeins hagur seljandans að tækifærið komi í ljós. Það er hagur beggja. Höfundur er sölustjóri og fyrirtækjaráðgjafi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Jósafat Björnsson Mest lesið Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Sjá meira
Afkoma fyrirtækja byggir að stórum hluta á því að skapa og nýta tekjutækifæri. Þegar kemur að tekjuöfluninni líta margir svo á að það sé einkamál söludeilda. En er það endilega rétt? Í flestum fyrirtækjum er fjöldi starfsmanna í reglulegum samskiptum við viðskiptavini án þess að starfa við sölu. Það getur verið fólk í þjónustu, ráðgjöf, dreifingu, verkefnavinnu, tæknistörfum eða öðrum sérfræðihlutverkum. Þetta fólk heyrir oft hluti sem sölufólkið heyrir aldrei. Viðskiptavinir segja frá vandamálum, óskum, fyrirætlunum og áskorunum og þar geta leynst verðmæt tækifæri. Ég varð sjálfur vitni að því fyrir nokkrum árum hversu auðveldlega slíkt tækifæri getur glatast. Fyrirtæki sem ég starfaði hjá var í viðskiptum við símafyrirtæki sem sendi tæknimann til okkar til að tengja búnað. Þegar hann var að ljúka verkinu benti hann mér á nokkur atriði sem mætti bæta, meðal annars til að auka hraða og stöðugleika nettengingarinnar. Mér leist vel á hugmyndirnar og bað hann að senda mér nánari upplýsingar. Þær bárust aldrei. Um ári síðar hringdi viðskiptastjóri símafyrirtækisins og spurði hvort fyrirtækið gæti gert eitthvað betur fyrir okkur. Þá mundi ég að tæknimaðurinn hafði nefnt ýmislegt árið áður, en mundi ekki lengur nákvæmlega hvað. Þarna hafði tækifæri glatast. Ég sat áfram með hægara og óstöðugra net, símafyrirtækið missti af viðskiptum og tæknimaðurinn fékk minni vinnu. Það hefði ekki þurft flókið sölukerfi til að breyta niðurstöðunni. Tæknimaðurinn hefði einfaldlega getað skráð nokkrar línur eftir heimsóknina og komið þeim áfram til viðskiptastjórans meðan allt var enn ferskt í minni. Þetta litla dæmi segir stærri sögu. Mörg fyrirtæki hafa mun fleiri „augu og eyru“ á markaðnum en þau gera sér grein fyrir. Starfsmenn sem hitta viðskiptavini daglega fá upplýsingar sem geta skipt miklu máli fyrir þjónustu, vöruþróun og sölu. Vandinn er oft sá að ekkert einfalt ferli er til staðar til að grípa þær. Það þarf ekki að kenna öllum að selja. Mikilvægara er að fólk kunni að hlusta, spyrja réttu spurninganna og þekkja þegar viðskiptavinur lýsir þörf sem fyrirtækið getur leyst. Síðan þarf leiðin áfram að vera einföld: Hver tekur við upplýsingunum? Hvar eru þær skráðar? Hver fylgir málinu eftir og hversu hratt? Ef vara eða þjónusta getur skapað viðskiptavininum raunverulegan ávinning er það ekki aðeins hagur seljandans að tækifærið komi í ljós. Það er hagur beggja. Höfundur er sölustjóri og fyrirtækjaráðgjafi.
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun