Skoðun

Skaðaminnkun í sau­tján ár – og þörfin enn mikil

Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar

Í sautján ár hefur Frú Ragnheiði, skaðaminnkunarúrræði Rauða krossins, verið ekið um höfuðborgarsvæðið í þeim tilgangi að nálgast fólk sem þarf á þjónustunni sem þar býðst að halda. Í sautján ár hafa sjálfboðaliðar Rauða krossins staðið vakt eftir vakt, ekið milli hverfa og bæjarfélaga og mætt fólki þar sem það er statt. Á þeirra forsendum, án fordóma en af skilningi, auðmýkt og náungakærleik.

Í Frúnni, eins og hún er gjarnan kölluð, er veitt margvísleg þjónusta sem telst til lágþröskulda heilbrigðisþjónustu. Í upphafi var þjónustan veitt í hjólhýsi. Nú fer hún fram í sérútbúnum bíl. Skjólstæðingar hafa samband og Frúnni er ekið á staðinn.

Allt frá upphafi var ljóst að þörfin fyrir að veita skaðaminnkandi þjónustu var mikil. Þau sem hennar þarfnast hefur mörgum hverjum verið ýtt út á jaðra samfélagsins. Þau hafa mætt fordómum í okkar sameiginlegu kerfum sem eiga að grípa okkur þegar eitthvað bjátar á. Þetta er fólkið sem mætir hlýju viðmóti og virðingu af sjálfboðaliðum Frú Ragnheiðar, rétt eins og við öll eigum rétt á þegar við þörfnumst stuðnings.

Sex kvöld í viku fer Frúin um höfuðborgarsvæðið til fundar við fólk sem þarf á stuðningi og nærveru að halda. Tilgangurinn er að vernda heilsu, draga úr skaða og koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll meðal fólks sem notar vímuefni. Í dag er verkefnið einnig rekið á Akureyri og Suðurnesjum.

Einhverjir hváðu þegar hugtakið skaðaminnkun heyrðist fyrst í tengslum við verkefnið Frú Ragnheiði. Það hefur vissulega breyst og flestir hafa heyrt hugtakið í dag en þekkja kannski ekki vel hvað það þýðir í verki. Skaðaminnkun felur í sér að bregðast við þeim hættum sem geta fylgt vímuefnanotkun og leita leiða til að draga úr þeim. Þannig getum við stutt fólk við að vernda heilsu sína og auka öryggi, hver sem staða þess er og hvaða skref það er tilbúið að taka.

Hjá Frú Ragnheiði fær fólk meðal annars öruggan búnað og getur skilað notuðum búnaði til öruggrar förgunar. Þar er veitt lágþröskulda heilbrigðisþjónusta, sálrænn stuðningur og aðstoð við að tengjast annarri heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu eða annarri þjónustu.[SJ1] Nýjasta viðbótin er efnagreining en í henni felst að fólk geti fengið staðfestingu á því sem efnin þeirra innihalda. Það hefur sýnt sig síðustu misseri að vöntun hefur verið á slíkri þjónustu og mikilvægt að hún sé veitt. Því kalli svaraði Rauði krossinn.

Þetta er það sem átt er við með lágþröskuldaþjónustu, að gera leiðina að aðstoð eða stuðningi eins greiða og hægt er. Þjónustan tekur mið af aðstæðum fólks og þörfum þess. Með því að fara á vettvang getum við náð til einstaklinga sem eiga erfitt með að sækja sér aðstoð annars staðar.

Samhliða Frúnni hefur Rauði krossinn einnig lagt sig fram við að fræða landsmenn alla um skaðaminnkun og hversu mikilvægt það er að sýna öðrum virðingu og huga að reisn fólks, þörfum, væntingum og vonum. Við sjáum að þörfin á slíkri fræðslu og slíku málsvarastarfi er enn mikil.

Sautján ára afmæli Frú Ragnheiðar er tilefni til að gleðjast yfir því sem hefur verið byggt upp. Það er líka tilefni til að minna á sameiginlega ábyrgð okkar á því að fólk hafi aðgang að þjónustu, öryggi og mannúð.

Sjálfboðaliðarnir eru kjarninn í verkefninu og skjólstæðingarnir hjarta þess. Við finnum áþreifanlega að þörf er á að tryggja skaðaminnkandi þjónustu traustan grundvöll til framtíðar og skjólstæðingunum leiðir áfram í heilbrigðisþjónustu, félagslegan stuðning og meðferð. Við þurfum líka að vanda orð okkar og framkomu gagnvart fólki sem notar vímuefni. Virðing á að fylgja allri þjónustu.

Frú Ragnheiður hefur í 17 ár rétt fólki hjálparhönd. Á afmælisdaginn eru skilaboðin skýr: Líf hvers og eins skiptir máli og aðstoð á að vera aðgengileg öllum þegar hennar er þörf.

Höfundur er verkefnastýra Frú Ragnheiðar.




Skoðun

Skoðun

SÁÁ

Ingibergur Þorkelsson skrifar

Sjá meira


×