Lögreglan beitti piparúða á mann sem abbaðist upp á viðskiptavini verslunar Birgir Olgeirsson skrifar 3. mars 2016 17:46 Til átaka kom á milli mannsins og lögreglu. Vísir/Stefán
Til átaka kom á milli lögreglumanns og karlmanns sem abbaðist upp á viðskiptavini verslunar á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar en þar kemur var að tilkynning um manninn barst lögreglunni þegar klukkuna vantaði korter í tvö í dag. Í dagbókinni kemur fram að lögreglumaður hafi reynt að ræða við manninn en það endaði með átökum sem lauk með því að lögreglumaðurinn beitti piparúða á manninn sem var síðan handtekinn. Hann var færður á lögreglustöð og lokaður inni í fangaklefa þar til rætt verður við hann. Rétt fyrir klukkan eitt í dag var bifreið ekið aftan á aðra á gatnamótum Sæbrautar og Skeiðarvogs. Eftir óhappið hljóp tjónvaldur af vettvangi en var handsamaður nokkru síðar. Bæði hann og farþegi í bifreiðinni voru eftirlýst af lögreglu og því handtekin. Voru færð til skoðunar á slysadeild en þaðan í fangageymslu. Tjónvaldurinn var grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna. Rétt fyrir hádegi í dag veitti lögreglan stolinni bifreið eftirtekt á Vesturlandsvegi. Var hún stöðvuð og þrír einstaklingar sem í henni voru handteknir. Í bílnum fannst nokkuð þýfi úr nokkrum málum og þremenningarnir vistaðir í fangageymslu og bíða þess að verða yfirheyrðir.
Mest lesið Alelda bíll á Emstruleið Innlent Skotárás á Times Square Erlent Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Innlent Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Innlent „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Fleiri fréttir Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Esjan snjólaus og það óvenju snemma Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Sjá meira