Innlent

Gripinn við að pissa í skúffu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Íbúi í Hafnarfirði vaknaði í morgun við að erlendur ferðamaður var að pissa í skúffu inn í íbúð mannsins.
Íbúi í Hafnarfirði vaknaði í morgun við að erlendur ferðamaður var að pissa í skúffu inn í íbúð mannsins. Vísir/Stefán
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk í morgun tilkynningu frá íbúa í Hafnarfirði. Hafði hann vaknað við þrusk í íbúð sinni og komið að manni sem var þar að kasta af sér vatni í skúffu.

Reyndist maðurinn, erlendur ferðamaður, vera öfurölvi. Hafði hann farið inn í ólæsta íbúðina og gat ekki gert grein fyrir athæfi sínu. Manninum var ekið að hótelinu þar sem hann gistir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×