Innlent

Slasaðist við sumarbústað í Fljótshlíð

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Þyrla LHG var kölluð út vegna slyssins.
Þyrla LHG var kölluð út vegna slyssins. Vísir/Vilhelm
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út um klukkan hálftólf í morgun til þess að sækja mann sem slasast hafði við sumarbústað í Fljótshlíð á Suðurlandi.

Var hann fluttur á slysadeild Landspítalans til aðhlynningar en ekki er vitað um tildrög slyssins eða líðan mannsins en ekki náðist í lögregluna á Suðurlandi við vinnslu fréttarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×