Innlent

Nýr skólastjóri á Nesinu

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Ólína E. Thoroddsen, nýráðin skólastjóri á Seltjarnarnesi
Ólína E. Thoroddsen, nýráðin skólastjóri á Seltjarnarnesi
Ólína E. Thoroddsen hefur verið ráðin skólastjóri Grunnskóla Seltjarnarness frá 1. júní 2016, að því er fram kemur á Facebook-síðu Seltjarnarnesbæjar.

Ólína er sögð flestum Seltirningum að góðu kunn þar sem hún hafi starfað við skólann síðastliðin 36 ár, þar af sem aðstoðarskólastjóri síðustu níu ár. „Auk þess hefur Ólína gegnt stöðu skólastjóra skólans í afleysingum skólaárin 2013-2014 og 2015-2016,“ segir þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×