Óværa sem smitar bæði menn og dýr Svavar Hávarðsson skrifar 13. febrúar 2016 07:00 Mælt er með því að kattaeigendur skoði dýr sín vel til að ganga úr skugga um að kattafló sé þar ekki að finna. vísir/stefán
Matvælastofnun (MAST) leggur þunga áherslu á að upplýsa uppruna og mögulega dreifingu kattaflóar sem greindist á ketti í Garðabæ fyrir skemmstu. Um heimiliskött er að ræða og því enn ekkert vitað um uppruna smitsins. Kattafló er enginn aufúsugestur enda getur hún valdið bæði dýrum og mönnum miklum óþægindum og jafnvel veikindum. Matvælastofnun hvetur fólk til að vera á varðbergi gagnvart þessari óværu og leggur mikla áherslu á að reynt verði að uppræta hana. Dýralæknar á Dýraspítalanum í Garðabæ fengu grun sinn um kattaflóna staðfestan á Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum í síðustu viku og Matvælastofnun var tilkynnt um greininguna á mánudag.KattaflóÞóra J. Jónasdóttir, sérgreinalæknir hjá MAST, segir flóna lifa á hundum og köttum, en vissulega geti manneskja borið á milli flær í stuttan tíma í fatnaði. Flóin sé kvik og eigi auðvelt með að stökkva á milli hýsla. Sjaldgæft er að flóin beri bakteríur sem valda alvarlegum sjúkdómum í mönnum. Hins vegar eru dæmi þess og því mikilvægt að uppræta flóna strax eins og tekist hefur áður – á hundum á árunum 1980 og 1984 og á innfluttum dýrum í einangrun í Einangrunarstöðinni í Reykjanesbæ árin 2012 og 2013. Þóra hvetur til þess að kattaeigendur og aðrir séu vakandi og skoði dýrin sín jafnvel sérstaklega núna. „Þetta er sníkjudýr sem við viljum alls ekki fá inn í landið, og full ástæða er til að fólk taki þetta tilvik alvarlega. Sérstaklega þar sem smitleiðirnar eru ekki enn þekktar,“ segir Þóra og vísar á upplýsingar á heimasíðu stofnunarinnar. Þar má finna upplýsingar sem geta hjálpað við greiningu, og það hjálpar að fuglaflóin er almennt ekki mikið á kreiki á þessum árstíma þannig að ef maður sér eitthvað kvikt í feldi er rétt að láta dýralækni skoða dýrið.Þóra J. JónasdóttirÞó flóin sé ekki landlæg hér á landi, þá er hún það í Bretlandi, í Bandaríkjunum og víða í Evrópu. Eins hafa komið upp tilfelli á Norðurlöndunum. Þóra bendir á að þrátt fyrir að sníkjudýrameðhöndlunar gæludýra sé krafist áður en þau eru flutt inn til landsins þá hefur komið upp fjöldi tilfella þar sem bæði inn- og útvortis sníkjudýr hafa greinst hjá dýrum í Einangrunarstöðinni og þannig verið hægt að uppræta smitið strax. Sum þeirra sníkjudýra geta bæði smitað menn og dýr. „Þau tilfelli undirstrika mikilvægi stöðvarinnar til að standa vörð um þá sérstöðu Íslands að vera að miklu leyti laust við þennan ófögnuð,“ segir Þóra.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira